Reykjavíkurprófastsdæmi vestra

 

Þau voru ljós á leiðum okkar

Prófastsdæmin í Reykjavík og Kirkjugarðar Reykjavíkurprófastsdæmanna hafa um árabil staðið fyrir tónlistardagskrá í Fossvogskirkju þann dag undir yfirskriftinni: “Þau voru ljós á leiðum okkar” Dagskráin verður næsta sunnudag 6. nóvember og stendur yfir frá kl. 14-16. Lesa áfram …

Irma Sjöfn Óskarsdóttir, 3/11 2011

25 ára vígsluafmæli Hallgrímskirkju

Sunnudaginn 26. október 1986 fór fram hátíðleg vígsluathöfn í Hallgrímskirkju. Þáverandi biskup Íslands, Pétur Sigurgeirsson, vígði kirkjuna með þátttöku margra presta og leikmanna en kirkjan var þéttsetin eins og sést vel á myndum frá athöfninni.
Á þessu hausti eru 25 ár liðin frá vígslunni og verður þess minnst í hátíðarmessu sunnudaginn 30. okt. kl. 11. Þá prédikar biskup Íslands, Karl Sigurbjörnsson, og prestar og djákni Hallgrímskirkju þjóna fyrir altari ásamt messuþjónum. Mótettukór Hallgrímskirkju syngur undir stjórn Harðar Áskelssonar kantors og við undirleik Björn Steinars Sólbergssonar organista. Eftir messuna verður boðið upp á kaffi og konfekt.   Þess má einnig geta að sunnudaginn 30. okt. verður einnig ensk messa í kirkjunni kl. 14.  Lesa áfram …

Irma Sjöfn Óskarsdóttir, 27/10 2011

Hátíðarmessa á Hallgrímsdegi

Fimmtudaginn 27.október kl. 20.00 er hátíðarmessa í Hallgrímskirkju.  Þess er minnst að á þessu hausti eru 25 ár liðin frá vígslu Hallgrímskirkju en 27.október er dánardagur Hallgríms Péturssonar og hefur þess gjarnan verið minnst með messugjörð. Þetta er 337. ártíð sálmaskáldsins. Séra Birgir Ásgeirsson prédikar og þjónar fyrir altari ásamt séra Jóni Dalbú Hróbjartssyni og Magneu Sverrisdóttur djákna. Messuþjónar aðstoða. Mótettukór Hallgrímskirkju syngur undir stjórn Harðar Áskelssonar. Organisti er Björn Steinar Sólbergsson. Eftir messuna er boðið upp á kaffi og konfekt. Allir hjartanlega velkomnir.

Irma Sjöfn Óskarsdóttir, 27/10 2011

Kvennamessa á kvennafrídaginn

Félag prestvígðra kvenna býður til kvennamessu í Dómkirkjunni í tilefni kvennafrídagsins 2011, mánudaginn 24. október. Hún hefst kl. 17:00 og lýkur kl. 17:30. Messan er kvennamessa í þeim skilningi að konur standa að henni og konur leiða hana. Hún er á máli beggja kynja. Allir textar eru valdir og skrifaðir með konur í huga og út frá reynsluheimi kvenna og konur eru sérstaklega hvattar til að koma og taka þátt. Messan er þó að sjálfsögðu opin öllum, konum og körlum. Lesa áfram …

Irma Sjöfn Óskarsdóttir, 24/10 2011

Grautargerð eða fegurð

Á fræðslumorgni í Hallgrímskirkju sunnudaginn 23.október, kl. 10.00, fjallar dr. Sigurður Pálsson fv. sóknarprestur í Hallgrímssókn um byggingarsögu Hallgrímskirkju.  Sigurður nefnir erindi sitt “Grautargerð eða fegurð” .  Kaffisopi og spjall að erindi loknu.

Irma Sjöfn Óskarsdóttir, 20/10 2011

Kynferðisleg misnotkun og í samhengi kirkju og trúfélaga -námskeið

Miðvikudaginn 19.október verðu haldið á vegum Fagráðs um meðferð kynferðisbrota innan Þjóðkirkjunnar í samstarfi við Guðfræði og trúarbragðafræðideild HÍ og Guðrún Ebba Ólafsdóttir  námskeið með Rev. Dr. Marie M. Fortune frá FaithTrust Institute í BNA.
Námskeiðið  verður haldið í Neskirkju miðvikudaginn 19. október, hefst kl. 8:30 en lýkur kl.17.00 Lesa áfram …

Irma Sjöfn Óskarsdóttir, 18/10 2011

Kynferðisleg misnotkun á börnum - málþing

Þriðjudaginn18.október bjóða Fagráð um meðferð kynferðisbrota innan Þjóðkirkjunnar, Guðfræði og trúarbragðafræðideild HÍ og Guðrún Ebba Ólafsdóttir til málþings með Rev. Dr. Marie M. Fortune frá FaithTrust Institute í BNA.  Málþingið  verður haldið í Hátíðasal Háskóla Íslands, þriðjudaginn 18. október 2011 kl. 10-13
Yfirskrift málþingsins er Kynferðisleg misnotkun á börnum í trúarlegu samhengi
Málþingið er ókeypis og öllum opið

Heimsókn Rev.Dr. Marie M. Fortune er kostuð af:
Þjóðkirkjunni
Guðfræðistofnun HÍ
Forlaginu
Prestafélagi Íslands
Kjalarnesprófastsdæmi
Reykjavíkurprófastsdæmi Eystra
Reykjavíkurprófastsdæmi Vestra

Irma Sjöfn Óskarsdóttir, 17/10 2011

Fræðslumorgnar í Seltjarnarneskirkju

Sunnudaginn 23.október verður fræðslumorgunn í Seltjarnarneskirkju  kl. 09.45 og lýkur fræðslunni kl. 10.30.   Svana Helen Björnsdóttir, forstjóri og kirkjuþingsfulltrúi flytur erindi sem hún kallar  ”Trú og kirkja í samtímanum”.

Irma Sjöfn Óskarsdóttir, 17/10 2011

Lyklar að bókmenntum, bíómyndum og Bob Dylan

Við þekkjum það öll hversu vont það er að vera lyklalaus og lokuð úti.
Lyklar ljúka upp dyrum og ný rými og víddir blasa við augum.
Lyklar ljúka líka upp sögum. Sagnaheimur Gamla testamentisins er stór. Hvernig eru þær nú aftur sögurnar í þeirri stóru bók: sköpunarsagan; sagan um Adam og Evu og fall þeirra; sagan um Kain og Abel; um Abraham, Ísak og Jakob; um Jósef og bræður hans; flóttasagan Exódus með Móse í fararbroddi?Hvað merkja þessar sögur? Hvers vegna lifa þær og eru lyklar að vestrænum bókmenntum, bíómyndum og Bob Dylan?
Námskeið í Neskirkju fjóra þriðjudaga 11., 18., 25. okt og 1. nóv. kl. 18-21. Prestarnir Örn Bárður og Sigurður Árni munu fjalla um lykilsögur. Matur, fræðsla, spjall. Þú borgar fyrir matinn, annað er frítt.

Skráning hjá Rúnari í s. 511 1560 eða á runar@neskirkja.is

Irma Sjöfn Óskarsdóttir, 11/10 2011

Saga Kvenfélags Hallgrímskirkju

Kvenfélag Hallgrímskirkju fagnar 70 ára afmæli sínu í mars 2012.  Kvenfélagið hefur verið áberandi í starfi kirkjunnar eins og kemur fram í sögu Hallgrímskirkju sem dr. Sigurður Pálsson hefur skráð.  Fimmtudaginn 13.október kemur dr. Sigurður á fund félagsins og fer yfir söguna.  Þær sem átt hafa mæður eða ömmur í félaginu á upphafsárum og langar til að heyra sögu félagsins eru hjartanlega velkomnir.  Ef einhversstaðar leynast gamlar myndir frá upphafsárum félagsins þá væri gaman ef fólk kæmi með þær til fundarins.

Irma Sjöfn Óskarsdóttir, 11/10 2011

Vefir sókna
Áskirkja
Bústaðakirkja
Dómkirkjan
Grensáskirkja
Hallgrímskirkja
Háteigskirkja
Langholtskirkja
Laugarneskirkja
Neskirkja
Seltjarnarneskirkja

Söfnuðir erlendis
Svíþjóð
Noregur
Kaupmannahöfn
London

Aðrir vefir
Reykjavíkurprófastsdæmi eystra
Fjölskylduþjónusta kirkjunnar
Leikmannaskólinn
Fangaprestur Þjóðkirkjunnar
Skálholt

Þriðjudagur

Fyrirbænamessa í Hallgrímskirkju kl. 10.30
Kyrrðarstund í Grensáskirkju kl. 12
Kvöldsöngur og trúfræðsla í Laugarneskirkju kl. 20

Dagskrá ...