Nú stendur yfir sýning á höklum eftir listamanninn Herder Anderson í Langholtskirkju. Hvít klæði úr harðangri og klaustri eftir sama listamann prýða altari og prédikunarstól kirkjunnar. Sl. sunnudag, fyrsta sunnudag eftir þrenningarhátíð, var helgaður grænn hökull eftir hinn aldraða velunnara kirkjunnar.
Lesa áfram …
María Ágústsdóttir, 12/6 2007
Seltjarnarneskirkja kynnir á heimasíðu sinni heilsdags leikjanámskeið sem haldin verða vikurnar eftir verslunarmannahelgi. Sjá nánar á www.seltjarnarneskirkja.is. Í Neskirkju verða haldin fjögur hálfsdags námskeið í júní og ágúst fyrir börn fædd 1997-2001. Sjá www.neskirkja.is.
Lesa áfram …
María Ágústsdóttir, 11/6 2007
Í dag, miðvikudaginn 6. júní, kemur saman hópur fólks úr Reykjavíkurprófastsdæmi vestra, til að ræða um safnaðaruppbyggingu, einkum m.t.t. messuþjónahópa, sem sr. Fridrik Modéus, sóknarprestur í Lundi, kynnti í vetur.
Lesa áfram …
María Ágústsdóttir, 6/6 2007
Á vegum Þjóðkirkju Íslands eru starfandi fjórir prestar á erlendri grundu. Til víðfeðmra starfssvæða þeirra telst megnið af Skandínavíu, Stóra-Bretland og Lúxemburg.
Lesa áfram …
María Ágústsdóttir, 4/6 2007
Biskup Íslands hefur sent prestum sínum bréf um að hvítasunnan verði Þjóðahátíð kirkjunnar, í virkri endurlifun atburða hvítasunnunnar, þegar lærisveinarnir “tóku að tala öðrum tungum eins og andinn gaf þeim að mæla” (sjá Postulasöguna, 2. kafla). Helgihald er í öllum kirkjum prófastsdæmisins á hvítasunnudag.
Lesa áfram …
María Ágústsdóttir, 25/5 2007
Héraðsfundur Reykjavíkurprófastsdæmis vestra var haldinn í gærkvöldi, 22. maí, í Áskirkju. Fundinn sóttu um fjörtíu manns og innan ramma hefðbundinna aðalfundarstarfa bar ýmislegt á góma.
Lesa áfram …
María Ágústsdóttir, 23/5 2007
Hvern miðvikudag er hádegisbæn í Dómkirkjunni í Reykjavík kl. 12.10. Opið hús er í safnaðarheimilinu á fimmtudögum kl. 14-16 og kvöldkirkjan er opin fimmtudagskvöld kl. 20-22.
Lesa áfram …
María Ágústsdóttir, 21/5 2007
Norðlensk-sunnlensk sumarsveifla er í Bústaðakirkju á laugardaginn. Á sunnudag, 20. maí, verður farið í árlega barnastarfsferð. Ferðinni er heitið upp á Akranes. Með þessum degi hefst sumarmessutími, færist frá kl. 14 til kl. 11.
Lesa áfram …
María Ágústsdóttir, 18/5 2007
Uppstigningardagur er dagur aldraðra í þjóðkirkjunni. Í kirkjum Reykjavíkurprófastsdæmis vestra verður guðsþjónustuhald með hefðbundnu sniði og víðast messukaffi á eftir.
Lesa áfram …
María Ágústsdóttir, 16/5 2007
Á sunnudaginn var, 6. maí, voru barnahátíðir í nokkrum kirkjum prófastsdæmisins. Í Seltjarnarneskirkju kom fjöldi manns saman til að lofa Guð og biðja, hlýða á fallegan barnasöng og samtal kirkjutrúðanna um bréf Guðs til okkar.
Lesa áfram …
María Ágústsdóttir, 8/5 2007