Nú stendur yfir námstefna í Skálholti á vegum prédikunarklúbbs Reykjavíkurprófastsdæmis eystra og Litúrgíustofu Skálholts. Aðalfyrirlesari er Frank C. Senn, sem fjallar um litúrgíuna í félagssögulegu ljósi.
Lesa áfram …
María Ágústsdóttir, 8/5 2007
Árið 2004 stóð Dómkórinn í Reykjavík fyrir samkeppni um ný lög og ljóð til að nota við kirkjulegar hjónavígslur. Hægt er að skoða þessi brúðkaupslög og aðra viðeigandi sálma á www.domkirkjan.is, undir flipanum Tónlistin.
Lesa áfram …
María Ágústsdóttir, 7/5 2007
Nk. sunnudag, 6. maí, eru haldnar vorhátíðir barnanna í Hallgrímskirkju og Dómkirkjunni. Hefjast hátíðirnar kl. 11 og verður margt í boði. Sjá www.hallgrimskirkja.is og www.domkirkjan.is
Lesa áfram …
María Ágústsdóttir, 30/4 2007
Á sunnudaginn, 2. sunnudag í sumri, er síðasti sunnudagaskóli vetrarins í Langholtskirkju. Fjölbreytt dagskrá er í boði, grillaðar pylsur og leikir.
Lesa áfram …
María Ágústsdóttir, 27/4 2007
Í kvöld, fimmtudaginn 26. apríl, er fyrirlestur í Neskirkju kl. 20 á vegum Nýrrar dögunar, samtaka um sorg og sorgarviðbrögð. Gunnar Hersveinn Sigursteinsson, heimspekingur, flytur erindi sem hann nefnir “Von í skugga sorgar”. Sjá heimasíðu samtakanna, www.sorg.is
Lesa áfram …
María Ágústsdóttir, 26/4 2007
Löng hefð er fyrir kyrrðarstund í fimmtudagshádegi í Laugarneskirkju. Frá kl. 12 leikur organistinn, Gunnar Gunnarsson, ljúfa tónlist á orgel kirkjunnar og síðan er bæna- og íhugunarstund.
Lesa áfram …
María Ágústsdóttir, 26/4 2007
Dagana 24. - 26. apríl er Prestastefna Íslands haldin á Húsavík. Meðal umfjöllunarefna er álit kenningarnefndar um Þjóðkirkjuna og staðfesta samvist og lögð verða fram drög að formi um blessun staðfestrar samvistar.
Lesa áfram …
María Ágústsdóttir, 23/4 2007
Nk. sunnudag, 22. apríl, verða tónleikar tónlistarhópsins Camerartica í Hallgrímskirkju. Tónleikarnir, sem eru á vegum Listvinafélags Hallgrímskirkju, verða haldnir í suðursal kirkjunnar og hefjast kl. 17. Sjá nánar á www.hallgrimskirkja.is
Lesa áfram …
María Ágústsdóttir, 20/4 2007
Gleðilegt sumar og takk fyrir veturinn! Í kirkjum prófastsdæmisins er víða boðið upp á helgihald í tengslum við skrúðgöngur og fjölskyldudagsskrá. “Bjartsýnisbusl” verður í Vesturbæjarlauginni og Svavar Knútur Kristinsson talar í Bústaðakirkju.
Lesa áfram …
María Ágústsdóttir, 19/4 2007
Í dag, 18. apríl, síðasta vetrardag, kl. 20 býður Seltjarnarneskirkja til málþings sem ber yfirskriftina Að vera í einbúð. Þrjú örerindi verða flutt, hugmyndabanki opnaður og málin rædd yfir kaffibolla.
Lesa áfram …
María Ágústsdóttir, 18/4 2007