Reykjavíkurprófastsdæmi vestra

 

Samráðsfundur um kirkjusönginn

Rétt í þessu - miðvikudagsmorgun 18. apríl - var að ljúka samráðsfundi presta og organista í Reykjavíkurprófastsdæmi vestra um kirkjusönginn. Söngmálastjóri Þjóðkirkjunnar, Hörður Áskelsson, hafði aðfararorð um almennan kirkjusöng og kynnti m.a. nýjan sálmasjóð…

Lesa áfram …

María Ágústsdóttir, 18/4 2007

Kristur er upprisinn!

Kristur er upprisinn! Hann er sannarlega upprisinn! Þannig hefur kveðja kristinna manna hljómað í aldanna rás, fagnaðarkallið í birtu upprisusólar. Verið velkomin í páskamessur kl. 8 í kirkjum prófastsdæmisins og í Dómkirkjunni, Háteigskirkju og Hallgrímskirkju kl. 11.

Lesa áfram …

María Ágústsdóttir, 8/4 2007

Páskanæturmessa í Langholtskirkju

Í Langholtskirkju hefur um árabil verið haldin páskanæturmessa kl. 23.30 að fornum sið. Páskavaka er einnig í Háteigskirkju og hefst kl. 22.30 að kvöldi hvíldardagsins mikla, sem í ár ber upp á 7. apríl.

Lesa áfram …

María Ágústsdóttir, 7/4 2007

Listaflétta í Langholtskirkju - Ég bíð uns birtir yfir

Kór Langholtskirkju býður upp á listafléttu á föstudaginn langa kl. 20, en eins og nafnið bendir til er þá mismunandi listformum fléttað saman í eina heild. Sjá www.kirkjan.is/langholtskirkja/

Lesa áfram …

María Ágústsdóttir, 5/4 2007

Helgihald á bænadögum

Helgihald um bænadagana, skírdag og föstudaginn langa, er með hefðbundnu sniði í söfnuðum prófastsdæmisins. Sjá yfirlit hér að aftan.

Lesa áfram …

María Ágústsdóttir, 4/4 2007

Í skugga krossins í Háteigskirkju

Þriðja árið í röð býður Háteigskirkja til sérstakrar stundar kl. 20 á miðvikudagskvöldi í dymbilviku. Ber hún yfirskriftina Í skugga krossins og er efni hennar sótt í fornan tíðasöng, Tenebrae.

Lesa áfram …

María Ágústsdóttir, 3/4 2007

Jóhannesarpassían í Fossvogskirkju

Á skírdag og föstudaginn langa, 5. og 6. apríl, kl 17 verður Jóhannesarpassía J. S. Bachs flutt í Fossvogskirkju. Flytjendur eru Kór Áskirkju ásamt 18 manna kammersveit og 6 einsöngvurum.

Lesa áfram …

María Ágústsdóttir, 2/4 2007

Tónleikar í Langholtskirkju

Í dag, 1. apríl, og á þriðjudaginn heldur Söngsveitin Fílharmónía tónleika í Langholtskirkju kl. 20 báða dagana.

Lesa áfram …

María Ágústsdóttir, 1/4 2007

Pálmasunnudagur: Nessöfnuður 50 ára

Á pálmasunnudag eru fermingar í flestum kirkjum prófastsdæmisins, utan Hallgrímskirkju þar sem messa og barnastarf er kl. 11. Í Langholtskirkju er fjölskylduguðsþjónusta kl. 11 þar sem börn ganga um kirkjuna og veifa heimagerðum pálmagreinum, en fermt eftir hádegi. Í Neskirkju verður hins vegar sérstök hátíðarmessa enda fagnar söfnuðurinn hálfrar aldrar afmæli sínu.

Lesa áfram …

María Ágústsdóttir, 31/3 2007

Málþing um boðun á tímum hnattvæðingar

Kristniboðs- og hjálparstarfsnefnd þjóðkirkjunnar býður í dag, 30. mars, til málþings um boðun kristinnar trúar á tímum hnattvæðingar. Málþingið er haldið í Grensáskirkju og stendur yfir frá kl. 13 til 16.30. Á dagskrá er umfjöllun um hnattvæðingu, guðfræði boðunar og aðferðir í samhengi samtímans.

Lesa áfram …

María Ágústsdóttir, 30/3 2007

Vefir sókna
Áskirkja
Bústaðakirkja
Dómkirkjan
Grensáskirkja
Hallgrímskirkja
Háteigskirkja
Langholtskirkja
Laugarneskirkja
Neskirkja
Seltjarnarneskirkja

Söfnuðir erlendis
Svíþjóð
Noregur
Kaupmannahöfn
London

Aðrir vefir
Reykjavíkurprófastsdæmi eystra
Fjölskylduþjónusta kirkjunnar
Fangaprestur Þjóðkirkjunnar
Skálholt

Fimmtudagur

Kyrrðarstund í Laugarneskirkju kl. 12
Hversdagsmessa í Grensáskirkju kl. 18.15
Taizé-messa í Háteigskirkju kl. 20
Kvöldkirkjan í Dómkirkjunni kl. 20

Dagskrá ...