Síðasta sunnudag hvers mánaðar er ensk messa í Hallgrímskirkju kl. 14 í umsjá sr. Bjarna Þórs Bjarnasonar. Sunnudaginn 28. janúar mun herra David Hamid, biskup Evrópustiftis anglíkönsku kirkjunnar, veita sr. Bjarna Þór formlegt leyfi til að sinna prestsstörfum fyrir ensku kirkjuna á Íslandi. Eftir messu og messukaffi hefst málþing í tilefni þess að 10 ár eru liðin frá stofnun Porvoo-sáttmálans.
Lesa áfram …
María Ágústsdóttir, 27/1 2007
Miðvikudaginn 24.janúar heldur kór Áskirkju fjáröflunartónleika til styrktar gluggasjóði Áskirkju. Tónleikarnir eru helgaðir minningu séra Árna Bergs Sigurbjörnssonar. Sjá á http://kirkjan.is.
Lesa áfram …
María Ágústsdóttir, 23/1 2007
Nk. fimmtudagskvöld, 25. janúar, er fyrsti fyrirlestur þessa árs á vegum Nýrrar dögunar, samtaka um sorg og sorgarviðbrögð. Hann verður haldinn í Safnaðarheimili Neskirkju og hefst kl. 20.
Lesa áfram …
María Ágústsdóttir, 23/1 2007
Prestum, ásamt öðrum fagstéttum, er skylt að gera barnaverndarnefnd viðvart vakni grunur um óviðunandi uppeldisskilyrði barns, áreitni eða ofbeldi í garð þess eða að það stofni sjálfu sér í hættu. Nú hafa verið samþykktar leiðbeinandi verklagsreglur um tilkynningaskyldu starfsmanna leik- grunn og framhaldsskóla til barnaverndarnefnda, sem prestar, djáknar og æskulýðsfulltrúar ættu að kynna sér, www.bvs.is.
Lesa áfram …
María Ágústsdóttir, 22/1 2007
Síðasta hugleiðing alþjóðlegrar, samkirkjulegrar bænaviku fjallar um þann kraft sem felst í upprisu Jesú Krists frá dauðum. Sjá http://kirkjan.is/?trumal/truarlif/baenavika/2007/08
Lesa áfram …
María Ágústsdóttir, 21/1 2007
Alþjóðlegri, samkirkjulegri bænaviku fyrir einingu kristinna manna lýkur formlega hérlendis í kvöld með sameiginlegri samkomu þeirra átta safnaða, sem standa að Samstarfsnefnd kristinna trúfélaga á Íslandi. Samkoman verður haldin í Fíladelfíu, Hátúni 2, Reykjavík. Hugleiðingar efni dagsins er hvernig fólk finnur sig yfirgefið í þrengingum sjúkdóma og dauða, sjá http://kirkjan.is/?trumal/truarlif/baenavika/2007/07
María Ágústsdóttir, 20/1 2007
Í dag, á sjötta degi alþjóðlegrar, samkirkjulegrar bænaviku, er yfirskriftin “Efld til að tala fyrir sig sjálf”, sjá lestra, hugleiðingu og bænir á http://kirkjan.is/?trumal/truarlif/baenavika/2007/06. Bænastund er í Veginum, Smiðjuvegi 2, Kópavogi, í hádeginu, og í kvöld í Aðventkirkjunni, Ingólfsstræti
Lesa áfram …
María Ágústsdóttir, 19/1 2007
Yfirskrift dagsins í dag er “Dómur Guðs yfir þögn okkar” og lestrana má finna hér: http://kirkjan.is/?trumal/truarlif/baenavika/2007/05. Sérstök athygli er vakin á sameiginlegri samkomu kristinna trúfélaga á Akureyri, sem haldin verður í Glerárkirkju kl. 20 í kvöld. Aðrar bænastundir eru sem hér segir:
Lesa áfram …
María Ágústsdóttir, 18/1 2007
Í dag, miðvikudag, eru samkomur og bænastundir alþjóðlegrar, samkirkjulegrar bænaviku sem hér segir:
Sjá lestra dagsins á: http://kirkjan.is/?trumal/truarlif/baenavika/2007/04
Lesa áfram …
María Ágústsdóttir, 17/1 2007
Þrjár bænastundir eru í dag, þriðjudag, í tilefni af alþjóðlegri, samkirkjulegri bænaviku fyrir einingu kristinna manna, tvær í Reykjavík og ein á Akureyri. Kl. 12 er bænastund í Veginum, Smiðjuvegi 5, Kópavogi. Rússneska rétttrúnaðarkirkjan býður til bænastundar kl. 18 að Sólvallagötu 10, Reykjavík.
Lesa áfram …
María Ágústsdóttir, 16/1 2007