Reykjavíkurprófastsdæmi vestra

 

Alþjóðabænadagur kvenna: Í skjóli Guðs með konunum í Paragvæ

Fyrsti föstudagur í mars hefur í um eina öld verið tileinkaður Alþjóðabænadegi kvenna. Þá safnast saman konur af flestum kynþáttum og öllum hlutum heimsins, í yfir 170 löndum, til að sameinast um að biðja fyrir konum og ólíkum aðstæðum þeirra. Um allt Ísland koma einnig saman stórir og smáir hópar kvenna og karla föstudaginn 2. mars til að taka undir bænarefnin, sem að þessu sinni koma frá Paragvæ. Yfirskriftin er: “Sameinuð í skjóli Guðs”. Samkoma höfuðborgarsvæðisins fer fram í Fríkirkjunni í Reykjavík og hefst kl. 20…
Lesa áfram …

María Ágústsdóttir, 1/3 2007

Saltfiskur á föstu/dögum

Á heimasíðu Neskirkju gefur að líta eftirfarandi frétt: Lífíð er saltfiskur. Föstudaginn 23. febrúar n.k. - og alla föstudaga til 30. mars - verður boðið upp á saltfiskmáltíð í hádeginu á Kaffitorgi Neskirkju í tilefni föstunnar. www.neskirkja.is/

Lesa áfram …

María Ágústsdóttir, 21/2 2007

Lundúnafarar koma saman

Í gærkvöldi hittist hópur fólks úr prófastsdæminu í Neskirkju til að draga saman lærdóm af kynnisferð sem nýlega var farin til Lundúna. Hér má lesa nokkra þræði umræðunnar, en ferðasagan mun birtast á næstu dögum.

Lesa áfram …

María Ágústsdóttir, 20/2 2007

Biblían í daglega lífinu

Í kvöld kl. 20 hefst í Hallgrímskirkju fjögurra kvölda námskeið um Biblíuna. Kennari er sr. María Ágústsdóttir, héraðsprestur, og er námskeiðið haldið í samvinnu við Leikmannaskóla Þjóðkirkjunnar. Sjá http://kirkjan.is

Lesa áfram …

María Ágústsdóttir, 14/2 2007

Mannræktarkvöld í Laugarneskirkju

Hvert þriðjudagskvöld er boðið til kvöldsöngs, fræðslu og 12-spora starfs í Laugarneskirkju kl. 20. Þriðjudaginn 13. febrúar fjallar Sigurbjörn Þorkelsson, rithöfundur og framkvæmdastjóri, um fyrirgefninguna eftir söng og spil þeirra Gunnars Gunnarssonar og Þorvaldar Halldórssonar.

Lesa áfram …

María Ágústsdóttir, 12/2 2007

Sr. Jakob Ágúst í Afríku

Sr. Jakob Ágúst Hjálmarsson, Dómkirkjuprestur, er um þessar mundir á yfirreið um slóðir íslenskra kristniboða í Afríku. Frá honum berast áhugaverðir pistlar um kirkjulífið ytra á heimasíðu Dómkirkjunnar, www.domkirkjan.is.

Lesa áfram …

María Ágústsdóttir, 7/2 2007

Kærleikssamvera í Bústaðakirkju

Þriðjudagskvöldið 6. febrúar kl. 20 verður haldin kærleikssamvera fyrir hjón og pör í Bústaðakirkju. Efnið er: Hvernig tölum við saman? Er bænin hluta af samtali para og hjóna?

Lesa áfram …

María Ágústsdóttir, 5/2 2007

Fræðslumorgnar í Hallgrímskirkju

Nú eru að hefjast að nýju Fræðslumorgnar í Hallgrímskirkju. Þeir eru haldnir hvern sunnudag í febrúar og mars kl. 10. Dagskrána má lesa hér, en fyrstur flytur erindi Gunnar Hersveinn, rithöfundur.

Lesa áfram …

María Ágústsdóttir, 1/2 2007

Taizé-messur í Háteigskirkju

Um margra ára skeið hafa verið haldnar svokallaðar Taizé-messur á fimmtudagskvöldum í Háteigskirkju í Reykjavík. Messurnar hefjast kl. 20 að undangenginni þagnarstund í kirkjunni.

Lesa áfram …

María Ágústsdóttir, 31/1 2007

Málþing um Porvoo í Hallgrímskirkju

Síðasta sunnudag hvers mánaðar er ensk messa í Hallgrímskirkju kl. 14 í umsjá sr. Bjarna Þórs Bjarnasonar. Sunnudaginn 28. janúar mun herra David Hamid, biskup Evrópustiftis anglíkönsku kirkjunnar, veita sr. Bjarna Þór formlegt leyfi til að sinna prestsstörfum fyrir ensku kirkjuna á Íslandi. Eftir messu og messukaffi hefst málþing í tilefni þess að 10 ár eru liðin frá stofnun Porvoo-sáttmálans.

Lesa áfram …

María Ágústsdóttir, 27/1 2007

Vefir sókna
Áskirkja
Bústaðakirkja
Dómkirkjan
Grensáskirkja
Hallgrímskirkja
Háteigskirkja
Langholtskirkja
Laugarneskirkja
Neskirkja
Seltjarnarneskirkja

Söfnuðir erlendis
Svíþjóð
Noregur
Kaupmannahöfn
London

Aðrir vefir
Reykjavíkurprófastsdæmi eystra
Fjölskylduþjónusta kirkjunnar
Fangaprestur Þjóðkirkjunnar
Skálholt

Fimmtudagur

Kyrrðarstund í Laugarneskirkju kl. 12
Hversdagsmessa í Grensáskirkju kl. 18.15
Taizé-messa í Háteigskirkju kl. 20
Kvöldkirkjan í Dómkirkjunni kl. 20

Dagskrá ...