Undanfarin þrjú ár hefur verið gerð könnun á kirkjusókn í Reykjavíkurprófastsdæmum fyrstu vikuna í október. Talið hefur verið, hve margir mæta í helgihald og athafnir, barna og unglingastarf, tónlistastarf, fullorðinsfræðslu og ferðamenn. Nú liggja tölur fyrir með samanburði við síðastliðin tvö ár, og eru gröf kirkna í Reykjavíkurprófastsdæmi vestra aðgengileg hér á vefnum. Aukning varð um 28% á fyrstu viku október í ár miðað við sömu viku í fyrra í báðum prófastsdæmum. Heildarfjöldi kirkjugesta í Reykjavík án ferðamanna var 25.013. Ferðamenn voru 4.541 og þar af 4.300 í Hallgrímskirkju.
Lesa áfram …
Bára Friðriksdóttir, 31/10 2005
Reykjavíkurprófastsdæmin bjóða upp á skyndihjálparnámskeið fyrir starfsfólk sitt og sjálfboðaliða dagana 28. október, 1. og 3. nóvember n.k. Námskeiðið verður haldið í Digraneskirkju frá kl. 9 til 13. Leiðbeinandi er Guðlaugur Leósson frá Rauða krossi Íslands. Enn geta fáeinir bæst í hópinn. Dagskrá er sem hér segir:
Lesa áfram …
Bára Friðriksdóttir, 27/10 2005
Ráðstefna um vatn og réttindi tengd aðgengi að hreinu og óspilltu vatni. Biskup Íslands setur ráðstefnuna og Hjálparstarf Kirkjunnar greinir frá mannréttindastarfi og þróunaraðstoð á vegum kirkjulegra aðila. Fjöldi annarra erinda frá ýmsum félagasamtökum. Ráðstefnan er haldin á Grand Hótel Reykjavík 29. október kl. 13-17. Allir eru velkomnir! Enginn aðgangseyrir.< ?xml:namespace prefix = o ns = "urn:schemas-microsoft-com:office:office" />
Lesa áfram …
Bára Friðriksdóttir, 27/10 2005
Kynningarnámskeið verður haldið í safnaðarheimili Laugarneskirkju sunnudaginn 16. 10. milli kl. 15:00 og 18:00. Þar munu hjónin Vigfús Bjarni Albertsson sjúkrahúsprestur og Valdís Ösp Ívarsdóttir fíkni- og fjölskylduráðgjafi halda námskeið og kynningu á sérstöku vinnukerfi sem hannað er til þess að gera góð sambönd betri. Stofnaðir verða parahópar sem hittast í heimahúsum og vinna sérstök verkefni. < ?xml:namespace prefix = o ns = "urn:schemas-microsoft-com:office:office" />
Lesa áfram …
Bára Friðriksdóttir, 13/10 2005
Nýr prestur, séra Svanhildur Blöndal, var sett inn í embætti sem prestur Hrafnistu við hátíðarmessu, sem haldin var á Hrafnistu í Reykjavík sunnudaginn 2. október síðastliðinn.
Lesa áfram …
Þorsteinn Gunnarsson, 12/10 2005
Kvikmyndahátíð í Reykjavík heldur nokkur málþing í tilefni hátíðarinnar. Hér verður sagt frá nokkrum þeirra. Þar á meðal verður eitt þeirra í samvinnu við rannsóknarhópinn um trúarstef í kvikmyndum (Deux ex cinema). Sjá nánar á www.filmfest.is
Lesa áfram …
Bára Friðriksdóttir, 3/10 2005
Helgina 23-25. september 2005 heimsótti prófastur íslenska söfnuðinn í Kaupmannahöfn.
Á föstudeginum var fundur með prestinum á skrifstofu hans í sendiráðinu, prófastur heilsaði upp á sendiherra Íslands Þorstein Pálsson og starfsfólk hans.
Lesa áfram …
Jón Dalbú Hróbjartsson, 27/9 2005
Laugardaginn 1. október verður dagskrá í Hallgrímskirkju fyrir foreldra og annað áhugafólk um uppeldi. Börn eru velkomin þar sem haft verður ofan af fyrir þeim meðan á dagskránni stendur.
Dagskrá verður sem hér segir:
Lesa áfram …
Kerfisstjóri, 27/9 2005
Sr. Hjálmar Jónsson ritaði nýlega grein um trúaruppeldi í fjölmenningarsamfélagi þar sem horft er til yfirskriftar kirkjunnar þetta ár að ná til heimilis og skóla. Pistill hans sem einnig birtist í Vesturbæjarblaðinu má lesa hér að neðan.
Lesa áfram …
Bára Friðriksdóttir, 20/9 2005
Haldin verða tvö hefðbundin skyndihjálparnámskeið í haust á vegum Reykjavíkurprófastsdæma. Þau eru hugsuð fyrir starfsfólk og sjálfboðaliða í kirkjum prófastsdæmanna. Fyrra námskeiðið er í Digraneskirkju á dagvinnutíma dagana 27. okt., 1. og 3. nóv. kl. 9-13. Hið síðara er í Hjallakirkju 28. okt. kl. 18-21og 29. okt. kl. 10-13. Leiðbeinandi er Guðlaugur Leósson frá Rauða krossinum.
Skráning fer fram á skrifstofu Reykjavíkurprófastsdæmis eystra eða profaust@centrum.is fyrir 20. október.
Bára Friðriksdóttir, 15/9 2005