Reykjavíkurprófastsdæmi vestra

 

Hátíð í Hallgrímskirkju á uppstigningardag

Á uppstigningardag verður hátíðarmessa í Hallgrímskirkju kl. 11.00. Gestakór frá Dómkirkjunni í Gautaborg syngur í messu í Hallgrímskirkju. Þau flytja Final úr Credo fyrir orgel og dans eftir Bengt Nilsson. Undir lok messunnar dansar listdansarinn Janni Groenwold. Kórstjóri er Ann-Maríe Rydber. Organistar verða Bengt Nilson og Hörður Áskelsson. Strax að lokinni messu verður farið í safnaðarferð eldri borgara að Minniborg í Grímsnesi og í Skálholt.

Lesa áfram …

Bára Friðriksdóttir, 3/5 2005

Kórar frá Akureyri sungu í Hallgrímskirkju

Sunnudaginn 1. maí var mikil hátíð í Hallgrímskirkju. Kór Akureyrarkirkju, Kammerkór norðurlands og sönghópurinn Voces Thules fluttu messu í fís-moll, op. 36 eftir Charles-Marie Widor (1844-1937). Björn Steinar Sólbergsson og Eyþór Ingi Jónsson léku á orgel en stjórnandi var Hörður Áskelsson. sr. Jón Dalbú predikaði og sr. Irma Sjöfn Óskarsdóttir þjónaði ásamt honum fyrir altari.

Lesa áfram …

Bára Friðriksdóttir, 3/5 2005

Vinnuþing um áfallahjálp í Grensáskirkju 28.-29. apríl

Hér er endanleg dagskrá vinnuþings um áfallahjálp sem er í næstu viku.

Helsta markmið þingsins er að vinna að tillögun sem löggjafarvaldið getur notað til að setja lög um málaflokkinn. Því er nauðsynlegt að fólk með þekkingu og reynslu af áfallahjálp taki þátt í vinnustofunum á föstudegi.

frekari upplýsingar eru á vef almannavarna

www.almannavarnir.is

Lesa áfram …

Bára Friðriksdóttir, 20/4 2005

Nýr páfi, Benedikt XVI

Rómversk kaþólska kirkjan hefur kosið nýjan páfa. Valið gekk fljótt og vel fyrir sig. Joseph Ratzinger kardínáli sem jarðsöng Jóhannes Pál páfa varð fyrir valinu. Hann hefur tekið sér nafnið Benedikt XVI.

Áfram á vef Þjóðkirkjunnar …

Bára Friðriksdóttir, 20/4 2005

Yfirlestur presta á nýrri þýðingu N.t.

Að morgni 6. apríl komu prestar úr prófastsdæminu saman og gerðu athugasemdir við nýju þýinguna á Nýja testamentinu. Hver prestur hafði tekið að sér að lesa yfir eina bók eða nokkur bréf og gefa sitt álit á þýðingarvinnunni. Tekið skal fram að prestarnir voru mjög fúsir til verksins og leystu það vel af hendi. Margar athugasemdir komu fram og voru skiptar skoðanir.

Lesa áfram …

Bára Friðriksdóttir, 6/4 2005

Fleiri myndir frá Noregsferð

Loksins er vefurinn tilbúinn til að taka við myndum. Hér koma nokkrar myndir úr ferð félaga úr prófastdæminu til Noergs í janúar s.l.

Njótið vel.

Lesa áfram …

Bára Friðriksdóttir, 4/4 2005

Prestar lesa nýju þýðingu N.t.

Prestar í prófastsdæminu ætla að halda fund um nýju þýðingu Nýja testamentisins 6. apríl í Grensáskirkju. Prestarnir hafa tekið að sér að lesa yfir ein bók eða bréf sem þeir koma með athugasemdir við á fundinum. Áætlað er að senda síðan athugasemdirnar til þýðinganefndar Biblíunnar.

Bára Friðriksdóttir, 4/4 2005

Nýstárlegt helgihald í dymbilviku

Mikið helgihald var í öllum kirkjum prófastsdæmisins um bænadaga og páska. Föstustundir með frábrugðnu því sniði sem íslenskt kirkjufólk á að venjast voru í Bústaðarkirkju, Neskirkju og Háteigskirkju. Sagt verður nánar frá þeim stundum hér að neðan.

Lesa áfram …

Bára Friðriksdóttir, 30/3 2005

Samtal um sorg

Syrgjendur eiga þess nú kost að koma á opna fundi í Neskirkju og er markmiðið það að fundir þessir verði haldnir á hverjum fimmtudegi frá klukkan 12.00-13.00. Séra Örn Bárður Jónsson, sóknarprestur í Neskirkju og Kristjana Nanna Jónsdóttir, leiða fundina til að byrja með.

Lesa áfram …

Bára Friðriksdóttir, 29/3 2005

Horft fram til Páska

Kyrravikan er gengin í garð. Það eru dagarnir fram að Páskadegi. Þetta er tíminn til að líta inn á við, horfa á afstöðu sína til Krists og til náungans. Fjölskrúðugt messuhald verður í öll kirkjum prófastsdæmisins. Það hjálpar til við innlifun í síðustu daga Jesú á jörð.

Lesa áfram …

Bára Friðriksdóttir, 21/3 2005

Vefir sókna
Áskirkja
Bústaðakirkja
Dómkirkjan
Grensáskirkja
Hallgrímskirkja
Háteigskirkja
Langholtskirkja
Laugarneskirkja
Neskirkja
Seltjarnarneskirkja

Söfnuðir erlendis
Svíþjóð
Noregur
Kaupmannahöfn
London

Aðrir vefir
Reykjavíkurprófastsdæmi eystra
Fjölskylduþjónusta kirkjunnar
Leikmannaskólinn
Fangaprestur Þjóðkirkjunnar
Skálholt

Miðvikudagur

Árdegismessa í Hallgrímskirkju kl. 8
Fyrirbænastund í Háteigskirkju kl. 11
Kyrrðarstund í Seltjarnarneskirkju kl. 12
Fyrirbænamessa í Neskirkju kl. 12.15

Dagskrá ...