Það er fátt betra en að byrja annir dagsins með morguntíð í Hallgrímskirkju. Þannig mæltist fastagesti morgunmessunnar. Hvern miðvikudag klukkan átta er staðfastur 15 til 20 manna hópur sem safnast saman fyrir innan altari kirkjunnar og nýtur þar andlegs samfélags með bæn, hugleiðingu, innilegri friðarkveðju og altarisgöngu. Að messu lokinni er kærleiksmáltíð í safnaðarheimilinu. Allt er þetta yfirstaðið um níuleitið og fólkið tínist til sinna verka endurnært til anda sálar og líkama.
Lesa áfram …
Bára Friðriksdóttir, 25/5 2005
Aðalfundur félags sóknarnefnda í Reykjavíkurprófastsdæmum var haldinn í Áskirkju í gær. Félagið er tveggja ára og er sóknarnefndarfólk á höfuðborgarsvæðinu að bera saman bækur sínar og stilla saman strengi eins og við á. Birgir Arnar formaður félagsins flutti skýrslu þar sem farið var yfir helstu starfsþætti.
Lesa áfram …
Bára Friðriksdóttir, 24/5 2005
Skýrslur fyrir héraðsfund frá prófasti og fleiri starfsþáttum prófastsdæmisins er komnar á vefinn. Þær er að finna vinstra megin á vefnum undir flipanum Efni.
Bára Friðriksdóttir, 24/5 2005
Árlegur héraðsfundur Reykjavíkurprófastsdæmis vestra verður haldinn í safnaðarheimili Bústaðakirkju fimmtudaginn 19. maí kl. 18-21.
Dagskrá fundarins er sem hér segir:
Lesa áfram …
Bára Friðriksdóttir, 18/5 2005
Hafinn er árstími vors og birtu. Vonin og kjarkurinn vex með hverjum degi því sólin iljar og lífið allt færist í nýjan búning. Í dag er huggunartími. Heilagur andi sem úthelltist yfir lærisveina Krists á Hvítasunnunni hefur einnig verið kallaður huggarinn. 
Lesa áfram …
Bára Friðriksdóttir, 16/5 2005
Um þessar mundir bíður kristinn heimur í eftirvæntingu eftir komu Heilags anda á Hvítasunnudag. Það er þriðja stórhátíð kristinnar kirkju. Tákn hvítasunnuundursins er dúfa. Hún kom af himnum ofan yfir mannfólkið og fyllti þau af heilögum anda og blessun.
Lesa áfram …
Bára Friðriksdóttir, 12/5 2005
Fyrsta maí sungu Kór Akureyrarkirkju, Kammerkór norðurlands og sönghópurinn Voces Thules messu í fís-moll, op. 36 eftir Charles-Marie Widor (1844-1937). Söngurinn iljaði, hér bætast við myndir frá athöfninni. 
Lesa áfram …
Bára Friðriksdóttir, 9/5 2005
Á uppstigningardag verður hátíðarmessa í Hallgrímskirkju kl. 11.00. Gestakór frá Dómkirkjunni í Gautaborg syngur í messu í Hallgrímskirkju. Þau flytja Final úr Credo fyrir orgel og dans eftir Bengt Nilsson. Undir lok messunnar dansar listdansarinn Janni Groenwold. Kórstjóri er Ann-Maríe Rydber. Organistar verða Bengt Nilson og Hörður Áskelsson. Strax að lokinni messu verður farið í safnaðarferð eldri borgara að Minniborg í Grímsnesi og í Skálholt.
Lesa áfram …
Bára Friðriksdóttir, 3/5 2005
Sunnudaginn 1. maí var mikil hátíð í Hallgrímskirkju. Kór Akureyrarkirkju, Kammerkór norðurlands og sönghópurinn Voces Thules fluttu messu í fís-moll, op. 36 eftir Charles-Marie Widor (1844-1937). Björn Steinar Sólbergsson og Eyþór Ingi Jónsson léku á orgel en stjórnandi var Hörður Áskelsson. sr. Jón Dalbú predikaði og sr. Irma Sjöfn Óskarsdóttir þjónaði ásamt honum fyrir altari.
Lesa áfram …
Bára Friðriksdóttir, 3/5 2005
Hér er endanleg dagskrá vinnuþings um áfallahjálp sem er í næstu viku.
Helsta markmið þingsins er að vinna að tillögun sem löggjafarvaldið getur notað til að setja lög um málaflokkinn. Því er nauðsynlegt að fólk með þekkingu og reynslu af áfallahjálp taki þátt í vinnustofunum á föstudegi.
frekari upplýsingar eru á vef almannavarna
www.almannavarnir.is
Lesa áfram …
Bára Friðriksdóttir, 20/4 2005