Víðförli - fréttabréf þjóðkirkjunnar

Víðförli er fréttabréf þjóðkirkjunnar. Hann kemur út reglulega, ýmist á prenti eða rafrænt. 

3. tölublað, ágúst 2010: Gef oss í dag vort daglegt brauð

Víðförli - 03 2010Ágústhefti Víðförla 2010 er helgað ellefta heimsþingi Lútherska heimssambandsins sem var haldið í Stuttgart 20.-27. júlí. Meðal efnis eru viðtal við Munib Younan, nýkjörinn forseta LH, umfjöllun um skilaboð heimsþingsins, forvarnarátak gegn HIV/AIDS, samtal um óréttmætar skuldir og viðtöl við sr. Kristínu Þórunn Tómasdóttur og Magneu Sverrisdóttur, djákna, sem voru fulltrúar þjóðkirkjunnar á heimsþinginu.

Lesa Víðförla (pdf) 

2. tölublað, júní 2010: Vorar skuldir 

Víðförli 02-2010Júníhefti Víðförla 2010 er helgað málþinginu Vorar skuldir - Kirkjan og baráttan gegn óréttmætum skuldum sem verður í Neskirkju mánudaginn 7. júní. Meðal efnis eru greinin „Farsæl sambúð? Gagnrýni á alþjóða fjármálamarkaðinn frá sjónarhorni samfélags“ eftir Peter N. Prove og Martin Junge, pistlarnir „Uppgjöf skuldra fátækra ríkja“ eftir Karl Sigurbjörnsson og „Deilum ábyrgð“ eftir Kristínu Þórunni Tómasdóttur. Einnig er birtur útdráttur úr greininni „Ábyrgð ólögmætra skulda hvílir á þeim sem veita lánið“ eftir Joseph Hanlon.

Lesa Víðförla (pdf)

1. tölublað, apríl 2010: Páskar

Víðförli, 1. tölublað 2010Víðförli kom út í breyttri mynd í apríl 2010. Meðal efnis í blaðinu eru viðtal við Pétur Kr. Hafstein, forseta kirkjuþings, pistlar um mansal, rafrænt einelti, vatn og mannréttindamál. Einnig er sagt frá æskulýðsdeginum og heimsþingi Lútherska heimssambandsins sem verður haldið í júlí. Á baksíðu er að finna tólf örhugleiðingar um upprisuna og Víðförlapistil eftir Karl Sigurbjörnsson, biskup Íslands.

Lesa Víðförla (pdf)

 
 

 

 

FylgiskjölStærð
Víðförli - 1. tölublað 2010835.39 KB
Víðförli - 2. tölublað 2010458.6 KB
Víðförli - 3. tölublað 2010620.22 KB