Þú finnur kirkjuna einnig á   fr yt Tw fb

Þjóðkirkjan

biðjandi boðandi þjónandi

Greinar á tré

Kristján Björnsson

Kirkjulíf er margbreytilegt og á að vera það þegar sóknarbörnin búa við ólíkar aðstæður. En kirkjulíf á líka að einkennast af þeirri einingu sem felst í trúnni á Jesú. Við erum greinar á trénu sem kirkjan er en þetta tré er eitt tré vegna þess að Kristur er einn. Það er mikilvægt að nýir sprotar fái að spretta fram og hver grein að vaxa og gildna, laufgast og jafnvel blómgast, eftir vaxtarskilyrðum á hverjum stað. Kirkjan í heild – og þar með talin biskupsþjónustan – á að styðja sóknarbörnin í því að bera áburð að þessu tré og hjálpa til við að hreinsa frá því óþarfa.

Samfélag um trú
Kirkjan er vettvangur þeirra sem vilja eiga samfélag um trúna á Krist. Hún er líka til vitnis um kærleika Krists þegar hún sprettur svo sterk uppúr jarðvegi samfélagsins að hún verður öllum til þjónustu og heilla. Þetta samband kirkju og samfélags er mikilvægur þáttur í skilningi okkar á því að þjóna í þjóðkirkju. Ef við lítum þannig á þjóðkirkjuna og söfnuði hennar sjáum við að það er jafn nauðsynlegt að samtali kirkju og þjóðfélags sé haldið vakandi og að þjónandi leiðtogar safnaðanna haldi áfram að vekja fólk til trúar og efla þetta samfélag.

Brot og sáttargjörð
Tilsjón biskupanna á að styðja góða stjórnsýslu, jafnrétti og lýðræðisleg vinnubrögð. Þess vegna þurfa þau sem gegna tilsjónarembættum biskupa og prófasta sjálf að vera hrein og bein og laus við ávirðingar. Þetta sanna dæmin úr okkar samtíð en vandræði kirkjunnar hafa verið ómæld þegar útaf bregður. Þar kemur aftur inn samspil kirkju og þjóðfélags því fólk lærir æ betur hvernig taka ber faglega á misnotkun, kynferðisbrotum, öðrum afbrotum og misbeitingu valds. Kirkjan þarf einmitt að halda óþægilegum samtölum vakandi svo komast megi í átt til fyrirgefningar, sáttargjörðar og friðar í hverju máli. Það er forsenda þess að hægt sé að tala um samtal kirkju og þjóðar.

Comments are closed.