Eftirvænting á Egilsstöðum

5. mars 2020

Eftirvænting á Egilsstöðum

Margt leynist í einu orgeli

Frá drottningu hljóðfæranna, orgelinu, munu stíga tærir tónar í Egilsstaðakirkju í kvöld kl. 20.00 og eins mun hljóma með því fagur söngur. Allt svo undramjúkt og ljúft – og Egilsstaðabúar bíða í eftirvæntingu.

Tilefnið er að í janúarmánuði síðastliðnum fór fram gagnger hreinsun, viðgerð og stilling á pípuorgeli Egilsstaðakirkju.

Verkið unnu þau Björgvin Tómasson orgelsmiður og kona hans, Margrét Erlingsdóttir rafvirki.

Orgelið kom í Egilsstaðakirkju haustið 1978, fjórum árum eftir vígslu kirkjunnar. Um er að ræða prýðilegt 19 radda hljóðfæri með tveimur hljómborðum og fótspili, smíðað af Mascioni-verksmiðjunni á Ítalíu. Mælt er með að orgel séu hreinsuð á 10-15 ára fresti til að viðhalda hljómgæðum sínum, en aldrei áður hafði farið fram gagnger hreinsun á þessu orgeli, svo það var orðið afar aðkallandi. Myndirnar sem fylgja fréttinni bera það líka með sér.

Aðdragandinn að verkinu sem nú var unnið er orðinn nokkuð langur. Verk af þessu tagi er kostnaðarsamt fyrir lítinn söfnuð enda þörf á mikilli og sérhæfðri vinnu.

Þar sem Egilsstaðasókn býr við bágan fjárhag, líkt og flestallar sóknir landsins þessi misserin, þurfti að leita lausna á málinu.
Tónlistarsjóður kirkjunnar var stofnaður á aðalsafnaðarfundi vorið 2018. Leitað var til einstaklinga, fyrirtækja og félagasamtaka á svæðinu um að leggja verkefninu lið, auk annarra sókna í prestakallinu, en við Egilsstaðakirkju fara fram ýmsar athafnir og viðburðir sem þjóna stærra svæði en sókninni einni.

Kórar og hljómlistarmenn komu einnig fram á tónlistarviðburðum þar sem aðgangseyrir og/eða frjáls framlög runnu til verkefnisins.

Kirkjufólki þykir afar vænt um þann velvilja sem kirkjan og menningarlíf hennar nýtur í samfélaginu hér á Fljótsdalshéraði.

Stærsti einstaki styrkurinn kom frá Kvenfélaginu Bláklukku á Egilsstöðum, kr. 500.000. Þrjú hótel á svæðinu styrktu verkefnið einnig í formi gistingar og uppihalds í viku í senn fyrir orgelsérfræðingana.

Margt smátt gerir eitt stórt og alls söfnuðust um þrjár og hálf milljón í sjóðinn eða nánast allur kostnaður við verkið.

Stjórn sjóðsins og sóknarnefnd Egilsstaðakirkju vilja koma á framfæri innilegu þakklæti sínu til allra þeirra sem lögðu verkefninu lið.

Mikil ánægja er í Egilsstaðakirkju með afraksturinn af vinnu þeirra Björgvins og Margrétar.

Hljóðið í orgelinu er nú miklu tærara en áður, vélasuð horfið og ekki spillir að loftið í kirkjunni er hreinna og betra, enda allt að fjörutíu ára gamalt ryk horfið úr hljóðfærinu! Þá ber þess að geta að Hermann Eiríksson trésmiður aðstoðaði Björgvin við hljóðeinangrun á mótor og blásara svo og við lagningu lagna upp í orgelið til að taka inn loft í það ofar en áður. Hermann hefur sungið í Kór Egilsstaðakirkju frá því að kirkjan var vígð og var einmitt meðal lykilmanna í orgelkaupunum á sínum tíma.

Til að fagna „upprisu“ hljóðfærisins bjóða Kór Egilsstaðakirkju og Torvald Gjerde organisti kirkjunnar til orgel- og söngkvölds í kirkjunni í kvöld, fimmtudaginn 5. mars kl. 20:00.

Fjölbreytt tónlistardagskrá, samsöngur og kaffiveitingar í lokin.

Allir velkomnir og frítt inn en frjáls framlög vel þegin því að enn vantar örlítið upp á að tekist hafi að safna fyrir öllum kostnaði við verkefnið.

Heimasíða Egilsstaðakirkju

ÞA/hsh


Svona lítur fjörutíu ára ryk út


Margrét og Björgvin - meistarar orgelsins og bjargvættir með meiru


  • Frétt

  • List og kirkja

  • Menning

  • Safnaðarstarf

  • Samstarf

  • Tónlist

  • Viðburður

  • Menning

Söngvahátíð 7.jpg - mynd

Söngvahátíð barnanna á Akureyri og í Reykjavík

23. apr. 2024
...börnin syngja í útvarpsmessu á sumardaginn fyrsta
Bænagangan 3.jpg - mynd

Bænagangan 2024

23. apr. 2024
...á sumardaginn fyrsta