Fátækir þurfa líka sápu og handspritt

24. apríl 2020

Fátækir þurfa líka sápu og handspritt

Samstarfssamtök Hjálparstarfs kirkjunnar í Kampala upplýsa fólk í fátækrahverfum um Covid-19 og nauðsyn handþvottar

Hjálparstarf í hálfa öld Frá árinu 2017 hefur Hjálparstarf kirkjunnar rekið þrjár verkmenntasmiðjur fyrir ungt fólk í fátækrahverfum Kampala, höfuðborg Úganda, með innlendu hjálparsamtökunum Ugandan Youth Development Link, UYDEL. Eftir ársnám í smiðjunum getur unga fólkið flest fundið sér atvinnu og séð fyrir sér á sómasamlegan hátt.

Að fyrirmælum stjórnvalda hefur smiðjunum verið lokað tímabundið vegna Covid-19 heimsfaraldursins en starfsfólk UYDEL tekur þátt í aðgerðum sem miða að því að hefta útbreiðslu kórónuveirunnar í borginni ásamt því að bregðast við afleiðingum faraldursins; bráðum skorti á matvælum og öðrum nauðsynjum. Höfuðáhersla er lögð á að koma matvælum, sápu og upplýsingum um faraldurinn til fólksins í fátækrahverfunum.

Stjórnvöld í Úganda ákváðu að koma mjólkurdufti, sykri, maísmjöli og baunum fyrst til sjúklinga, fólks með fötlun og munaðarlausra sem dveljast í 134 stofnunum í höfuðborginni og á landsvísu. UYDEL hefur tekið þátt í neyðaraðstoðinni frá byrjun apríl með því að lána tvo pallbíla og starfsfólk til matvæladreifingarinnar sem hefur nú náð til hátt í milljón íbúa.                                                                                                                                 
Óttast er að smitum eigi eftir að fjölga mikið í Úganda en þann 24. apríl voru 74 staðfest smit skráð á vefsíðu heilbriðgðisyfirvalda í landinu, sjá hér.

Anna Kavuma, yfirfélagsráðgjafi UYDEL, segir að unga fólkið í fátækrahverfunum sé ekki nægilega meðvitað um forvarnir og að hreinlætisaðstaða sé af mjög skornum skammti í hverfunum líka. Anna segir stöðuna mjög slæma í samkomubanni. Unga fólkið sem hefur fengið greitt fyrir vinnu sína frá degi til dags á nú ekki fyrir mat, hvað þá fyrir sápu eða handspritti, segir Anna og bætir við að aðgengi að vatni sé líka mjög takmarkað.

Innlendu hjálparsamtökin í Úganda (UYDEL) leggja nú höfuðáherslu á að koma í veg fyrir útbreiðslu Covid-19 í fátækrahverfum Kampala með upplýsingagjöf um nauðsyn handþvottar og fjarlægðarreglunnar. Við erum að koma upp handþvottasvæðum með vatnsfötum, sápu og handspritti í hverfunum og við höfum fengið ungt fólk til að sauma andlitsgrímur líka, segir Anna.

Samstarf um aðstoð „Við óttumst að ein afleiðing faraldursins verði aukið ofbeldi í fátækrahverfunum þar sem örvæntingin grípur um sig,“ segir Anna og bætir við að UYDEL sé nú í samstarfi við önnur hjálparsamtök um að koma matvælum til fólksins í fátækrahverfunum á meðan faraldurinn geisar en talið er að hann muni ganga yfir í Úganda á þremur mánuðum.

Innlendu hjálparsamtökin í Úganda (UYDEL) óttast að aðstæður fólksins í fátækrahverfunum í Kampala eigi eftir að versna til muna næstu þrjá mánuðina og að efnahagslegra áhrifa muni gæta mun lengur. Samtökin segja að fjölskyldurnar muni ekki lengur hafa ráð á að senda börnin í skólann og að með aukinni örbirgð verði unglingsstúlkur enn líklegri til að verða fyrir misnotkun og kynferðislegu ofbeldi. Samtökin hafa þegar hafið átak í hverfunum þar sem varað er við þessari hættu og fólk hvatt til samstöðu á erfiðum tímum.

Hjálparstarf kirkjunnar heldur áfram að styrkja öflugt starf UYDEL í fátækrahverfum Kampala og gerir það með stuðningi frá hjartahlýju fólki á Íslandi.

Vilt þú hjálpa?

Nánar um smiðjur Hjálparstarfs kirkjunnar og UYDEL

hsh/kó


Aðgengi að vatni er af skornum skammti í fátækrahverfunum
og þegar unga fólkið hefur ekki tækifæri til að vinna fyrir sér
á það hvorki fyrir mat, sápu né öðrum nauðsynjum


  • Alþjóðastarf

  • Fræðsla

  • Frétt

  • Hjálparstarf

  • Kærleiksþjónusta

  • Menning

  • Samfélag

  • Samstarf

  • Sjálfboðaliðar

  • Trúin

  • Fræðsla

  • Hjálparstarf

  • Menning

  • Samfélag

Sr. Stefán Már.jpg - mynd

Ályktun Presta- og djáknastefnu 2024

18. apr. 2024
...um mikilvægi barna- og unglingastarfs
Úlfastundir 5.jpg - mynd

Úlfastundir í Lágafellssókn

18. apr. 2024
...boðið upp á slátur og graut