Öflugur stuðningur við flóttafólk

15. maí 2020

Öflugur stuðningur við flóttafólk

Stúlkur á leið í skólann í flóttamannabúðum fyrir Sýrlendinga í Jórdaníu þar sem kirkjutengdar hjálparstofnanir hafa veitt mannúðaraðstoð undanfarin ár.

Hjálparstarf kirkjunnar sendi í vikunni 31,642.925 króna fjárframlag til mannúðaraðstoðar, annars vegar vegna átakanna í Sýrlandi og hins vegar í Írak.

Framlagið er að meðtöldum styrk frá utanríkisráðuneytinu, samtals rúmar 30 milljónir króna. Féð verður notað til verkefna sem unnin eru á vegum Lútherska heimssambandsins í þágu fólks á vergangi eða flótta.

Svar við neyðarbeiðni „Í þessum heimshluta er þörfin fyrir mannúðaraðstoð gífurleg. Mikil neyð almennings er viðvarandi meðan ekki tekst að leysa ágreiningsmál sem valda stríðsátökum,“ segir Bjarni Gíslason, framkvæmdastjóri Hjálparstarfsins, en fjárframlagið frá Íslandi er svar við neyðarbeiðni frá Alþjóðlegu hjálparstarfi kirkna (ACT Alliance).

Rúmlega tuttugu og ein milljón króna var send til að aðstoða fólk vegna átakanna í Sýrlandi en þau hafa staðið yfir hátt í áratug. Áætlað er að tæplega tólf milljónir manna þurfi á aðstoð að halda en þar af eru rúmlega sex milljónir á vergangi innan Sýrlands. Að sögn Bjarna þurfa um fimm milljónir flóttamanna frá Sýrlandi í nágrannalöndunum Tyrklandi, Líbanon og Jórdaníu á aðstoð að halda.

„Langflestir lifa undir fátæktarmörkum og eiga í erfiðleikum með að mæta brýnustu þörfum fyrir mat og skjól. Það er mikil þörf fyrir menntun, starfsþjálfun og úrræði til að auka tekjumöguleika fjölskyldna,“ segir hann.

Verkefni Lútherska heimssambandsins eru bæði í Sýrlandi og Jórdaníu og ná samtals til rúmlega 2.300 einstaklinga.

Í grannríkinu Írak ríkir neyðarástand vegna átaka. Þangað sendi Hjálparstarf kirkjunnar, með styrk frá utanríkisráðuneytinu, rúmlega 10,5 milljóna króna fjárframlag til mannúðaraðstoðar Lútherska heimssambandsins (LWF DWS), við fleiri en 22 þúsund einstaklinga.

Endurbætur og fræðsla „Þetta er að stórum hluta fólk á vergangi en líka fólk sem hefur snúið heim eftir að hafa flosnað upp og þarf stuðning til að koma undir sig fótunum aftur. Verkefnið snýst meðal annars um að hjálpa til við endurbætur á húsnæði, gera við brunna, kamra og aðra hreinlætisaðstöðu. Einnig felst í verkefninu ýmiss konar fræðsla um hreinlæti, kynbundið ofbeldi, jafnrétti og mannréttindi, að ógleymdum námskeiðum sem tengjast því að fjölga tekjumöguleikum,“ segir Bjarni. .

gs/kó/hsh

Heimasíða Hjálparstarfs kirkjunnar


  • Frétt

  • Hjálparstarf

  • Kærleiksþjónusta

  • Samfélag

  • Samstarf

  • Skipulag

  • Fræðsla

Ólafur Egilsson

Vinir Hjálparstarfsins fræðast um starfið

24. apr. 2024
...stilla saman strengi
Söngvahátíð 7.jpg - mynd

Söngvahátíð barnanna á Akureyri og í Reykjavík

23. apr. 2024
...börnin syngja í útvarpsmessu á sumardaginn fyrsta
Bænagangan 3.jpg - mynd

Bænagangan 2024

23. apr. 2024
...á sumardaginn fyrsta