Stafholt laust

19. maí 2020

Stafholt laust

Stafholtskirkja - Mynd: Guðmundur Karl Einarsson

Biskup Íslands óskar eftir sóknarpresti til þjónustu í Stafholtsprestakalli, Vesturlandsprófastsdæmi. Miðað er við að viðkomandi geti hafið störf í síðasta lagi þremur mánuðum eftir að niðurstaða um ráðningu liggur fyrir.

Í Stafholtsprestakalli eru þrjár sóknir, þ.e. Hvammsókn, Norðtungusókn og Stafholtssókn, hver með sína sóknarkirkju.

Þann 1. desember 2019 var heildarfjöldi íbúa í prestakallinu 410 manns. Stafholtsprestakall er í Vesturlandsprófastsdæmi, sem í eru 10 prestaköll.

Allar gildar umsóknir fara til þriggja manna matsnefndar sem metur hæfni umsækjenda, sbr. 5. og 6. gr. starfsreglna um val og veitingu prestsembætta. Matsnefnd velur að jafnaði fjóra hæfustu umsækjendurna en þó aldrei fleiri en fimm og skilar skýrslu þar að lútandi til biskups.

Kjörnefnd Stafholtsprestakalls kýs sóknarprest úr hópi umsækjenda, að loknu valferli kjörnefndar, sbr. „Starfsreglur um val og veitingu prestsembætta“, sjá hér.

Fyrirvari Biskupafundur hefur unnið að breytingum á skipan prestakalla um allt land með sameiningum tveggja eða fleiri í eitt stærra prestakall án fækkunar presta. Ofangreind þjónusta er auglýst laus til umsóknar með þeim fyrirvara að vera má að biskupafundur leggi tillögur fyrir kirkjuþing er varða m.a. Stafholtsprestakall og sem kunna að leiða til breytinga á skipan prestakalla í prófastsdæminu, hljóti þær samþykki kirkjuþings.

Vakin er athygli á breyttri réttarstöðu starfsmanna kirkjunnar, þar með talið presta, sbr. viðbótarsamning íslenska ríkisins og þjóðkirkjunnar frá 6. september 2019. Samningurinn hefur í för með sér breytingar á 22. gr. laga nr. 70/1996 um réttindi og skyldur starfsmanna ríkisins, en í umræddri grein voru biskup Íslands, vígslubiskupar, prófastar og prestar þjóðkirkjunnar tilgreindir sem embættismenn ríkisins. Eftir breytinguna teljast þessir aðilar vera almennir starfsmenn þjóðkirkjunnar – Biskupsstofu.

Nánari upplýsingar, t.d. starfskjör og helstu reglur og skyldur varðandi starfið, eru veittar hjá sr. Þorbirni Hlyn Árnasyni, prófasti Vesturlandsprófastsdæmis, s. 698 8300 og hjá Þjóðkirkjunni - Biskupsstofu, s. 528 4000.

Umsóknarfrestur er til miðnættis þriðjudagsins 2. júní 2020.

Sjá nánar hér.

hsh
  • Frétt

  • Safnaðarstarf

  • Samfélag

  • Sóknarnefndir

  • Starf

  • Starfsumsókn

  • Auglýsing

Sr. Stefán Már.jpg - mynd

Ályktun Presta- og djáknastefnu 2024

18. apr. 2024
...um mikilvægi barna- og unglingastarfs
Úlfastundir 5.jpg - mynd

Úlfastundir í Lágafellssókn

18. apr. 2024
...boðið upp á slátur og graut