Organistinn: Tómas Guðni

27. júlí 2020

Organistinn: Tómas Guðni

Tómas Guðni Eggertsson við orgelið í Seljakirkju

Hann gengur rakleitt að hljóðfærinu í Seljakirkju í Breiðholti, grannur og einbeittur á svip. Opnar kóralbókina og lítur yfir hana, snýr sér að söngfólkinu. Og síðan fer hann fimum höndum um hljóðfærið. Hér er maður sem kann til verka og meira en það.

Guðsþjónustan gengur vel fyrir sig á þessum síðasta sunnudegi júlímánaðar. Og þegar presturinn, sr. Bryndís Malla Elídóttir, stígur í stólinn, sest organistinn á kirkjubekk og hlýðir á eins og aðrir.

Prestinum mælist vel í umfjöllun sinni um mettun þúsundanna. Hún vísar til steinds glugga í kirkjunni sem bregður leiftri upp úr þeirri frásögu Jesú. En þennan sólbjarta sunnudagsmorgunn nutu steindir gluggar Einars Hákonarsonar, myndlistarmanns, sín einkar vel. Þeir eru nánast það fyrsta sem fyrir augu ber þegar inn í kirkjuna er komið, í sjónhæð, sterkir og litfagrir, mynda hring sem er rofinn af kirkjudyrum, þegar maður stígur inn í söguna eilífu sem gluggarnir rekja, allt frá sköpun heimsins og til þess dags er ljósið kemur inn í hann.

Eftirspilið er svo leikið með miklum glæsibrag - maður og hljóðfæri renna saman í eitt – það er list – og hún hrífur hjörtu mannanna til Guðs. Fólk staldrar ögn við á leiðinni út og kórinn klappar organistanum lof í lófa með hlýju brosi á vör þegar síðasti tónninn er sleginn. Þetta er okkar maður, má lesa úr andlitum fólksins.

Tómas Guðni Eggertsson er fjölhæfur tónlistarmaður enda var tónlist alls staðar í kringum hann þegar hann var barn. Hann hefur sótt menntun sína til Nýja tónlistarskólans, til Royal Scottish Academy of Music and Drama í Glasgow en þaðan lauk hann BA-prófi og framhaldsnámi ári síðar. Svo lauk hann kantorsprófi frá Tónskóla þjóðkirkjunnar. Þá hefur hann leikið víða á orgel og píanó, ýmist sem einleikari eða undirleikari. Leikið alls konar tónlist. Og svo var hann í lúðrasveit hér fyrr á árum. Tónlistin rennur í æðum hans.

Tómas Guðni hefur verið organisti í Grundarfirði, Stykkishólmi og Grindavík.

Nú er hann organisti og tónlistarstjóri í Seljakirkju í Reykjavík. Hefur verið það í tíu ár og er ánægður í starfi.

Kirkjan.is tók hann tali í lok guðsþjónustunnar í Seljakirkju í gær.

Tómas Guðni sagðist vera að æfa fyrir  hádegistónleika í Hallgrímskirkju á fimmtudaginn 30. júlí. Kórónaveirufaraldurinn sló alþjóðlega orgelsumarið 2020 út af nótnaborðinu en íslenskir organistar hlupu í skarðið svo að Klais-orgel Hallgrímskirkju þagnar ekki. Listvinafélag Hallgrímskirkju stendur fyrir tónleikunum. Dagskráin er fjölbreytileg og vönduð.

Og kirkjan.is spyr Tómas Guðna hvað hann ætli að leika:

„Ég ætla að spila tokkötu og fúgu í d-moll eftir Jóhannes Sebastian Bach,“ svarar hann og segist hafa leikið fúguna í lok guðsþjónustunnar í gærmorgun, „og svo útfararlag eftir Albinoni, adagio, í heild sinni, það eru um níu mínútur.“ Hann segir það vera kunnugt útfararlag en aldrei spilað allt. „Svo verð ég með einn sálmforleik eftir Bach sem er tileinkaður föstudeginum langa en ég held mikið upp á hann. Og í lokin verk sem er tengt uppstigningardegi eftir Olivier Messiaen, leik þriðja kaflann.“

Kirkjan.is óskar honum góðs gengis og spyr svona í lokin hvað organistar geri í tómstundum sínum.

„Stangveiðimaður þegar tækifæri gefst, veiði silung,“ segir hann ákveðið. „Á veturna fer ég á rjúpu.“ Ekki alinn upp við veiðiskap enda þótt rjúpur hafi verið á borðum á æskuheimili hans. Veiðiskapnum hafi hann kynnst í gegnum vini sína í tónlistinni og fallið fyrir honum.

„Það er gott að vera úti í náttúrunni á veiðum, maður slakar á og hvílist,“ segir hann hugsi og bætir því við að það sé sérstaklega gott fyrir organista sem megi helst ekki slá feilnótu á vinnustað en aftur á móti puðrist æði mörg feilskotin út um hlaupið á haglaranum á rjúpnaveiðum. „Fáar sögur fara hins vegar af aflabrögðum úr veiðitúrunum“, segir hann með glettnislegum svip. En það er bara allt, allt önnur saga.

hsh


  • List og kirkja

  • Menning

  • Messa

  • Tónlist

  • Viðburður

  • Frétt

Söngvahátíð 7.jpg - mynd

Söngvahátíð barnanna á Akureyri og í Reykjavík

23. apr. 2024
...börnin syngja í útvarpsmessu á sumardaginn fyrsta
Bænagangan 3.jpg - mynd

Bænagangan 2024

23. apr. 2024
...á sumardaginn fyrsta