Kirkja, tónlist og texti

30. október 2020

Kirkja, tónlist og texti

Orgel - drottning hljóðfæranna

Hægt er að sækja um styrki í Tónmenntasjóð kirkjunnar til miðnættis sunnudaginn 30. nóvember n.k. 

Ekki verður annað sagt en að um sé að ræða merk tímamót hjá Tónmenntasjóði kirkjunnar vegna þess að þetta er í síðasta sinn sem úthlutað verður úr honum. Í hans stað kemur á næsta ári Tónlistarsjóður þjóðkirkjunnar og Stefs og er þess vænst að hann verði mun öflugri en hinn eldri sjóður.

Umsóknir í Tónmenntasjóð kirkjunnar sendist á netfangið: margret.boasdottir@kirkjan.is

Samkvæmt reglum sem taka til sjóðsins skal hann styrkja tónskáld og textahöfunda sem semja kirkjuleg verk.

Í tilkynningu frá sjóðsstjórn segir að styrkhæf verk séu meðal annars: frumsköpun tónlistar og útsetningar; textar og þýðingar við tónlist; útgáfa á nótum sem og hljóðritum; og heimildarit um kirkjutónlist. Sjóðurinn styrkir ekki tónleikahald.

Þar sem ekkert sérstakt eyðublað fyrir styrkumsókn er til þá skal eftirfarandi koma fram í umsókninni: nafn, heimilisfang, kennitala, netfang og símanúmer. Einnig stutt ferilskrá og greinargóð lýsing á verkefninu ásamt kostnaðaráætlun. Þá er hægt að senda sýnishorn með umsókn.

Úthlutun styrkja fer fram í desember á þessu ári.

Í fyrra hlutu ellefu styrk úr sjóðnum. 

Stjórn Tónmenntasjóðs kirkjunnar
Margrét Bóasdóttir, formaður, tilnefnd af mennta- og menningarmálaráðherra
Hildigunnur Rúnarsdóttir, meðstjórnandi, tilnefnd af STEF
Hrafn Andrés Harðarson, meðstjórnandi, tilnefndur af Rithöfundasambandi Íslands

Varamenn  
Gunnar Andreas Kristinsson, tilnefndur af STEF
Margrét Lóa Jónsdóttir, tilnefnd af Rithöfundasambandi Íslands

hsh


  • List og kirkja

  • Menning

  • Tónlist

  • Trúin

  • Umsókn

  • Frétt

Ólafur Egilsson

Vinir Hjálparstarfsins fræðast um starfið

24. apr. 2024
...stilla saman strengi
Söngvahátíð 7.jpg - mynd

Söngvahátíð barnanna á Akureyri og í Reykjavík

23. apr. 2024
...börnin syngja í útvarpsmessu á sumardaginn fyrsta
Bænagangan 3.jpg - mynd

Bænagangan 2024

23. apr. 2024
...á sumardaginn fyrsta