Árlegur kristniboðsdagur er á sunnudaginn

9. nóvember 2022

Árlegur kristniboðsdagur er á sunnudaginn

Fjölmenni á kristniboðssamkomu undir tré

Árlegur kristniboðsdagur Þjóðkirkjunnar er sunnudaginn 13.nóvember.

Þá er sérstaklega horft til kristniboðsstarfs Íslendinga nú og á liðnum árum.

Dagurinn er jafnframt áminning um kall kirkjunnar til að sinna boðun fagnaðarerindisins nær og fjær.

Útvarpsguðsþjónusta dagsins verður frá Dómkirkjunni í Reykjavík en þá verður einnig ný sálmabók tekin í notkun.

Guðsþjónustan hefst kl. 11:00 f.h.

Sr. Ragnar Gunnarsson framkvæmdastjóri Kristniboðssambandsins prédikar í guðsþjónustunni.

Fulltrúar sálmabókarnefndar taka þátt í guðsþjónustunni og afhenda Biskupi Íslands fyrsta eintakið.

Prestar og starfsfólk kirkjunnar um land er hvatt allt til að minnast kristniboðsins og taka samskot til starfs Kristniboðssambandsins.

Starfsmenn og sjálfboðaliðar á vegum Kristniboðssambandsins taka víða þátt í guðsþjónustum dagsins.

Beyene Gailassie, sem ólst upp í Konsó í Eþíópíu, tekur þátt í guðsþjónustu og samkomu á Akureyri.

Árleg kaffisala Kristniboðsfélags karla í Reykjavík verður í Kristniboðssalnum, Háaleitisbraut 58-60, kl. 14-17.

Kl. 17:00 verður samkoma á sama stað þar sem Ragnar Schram kristniboði flytur hugvekju og segir frá starfinu.

Kristniboðsstarfið tekur breytingum með þróun samfélaga og aukins sjálfstæðis heimamanna.

Undanfarin ár hafa íslenskir kristniboðar ekki verið við föst störf í Eþíópíu og Keníu en áfram styrkir Kristniboðssambandið ýmis verkefni á sviði boðunar og kærleiksþjónustu.

Ein fjölskylda, Katsuko og Leifur Sigurðsson ásamt þremur börnum þeirra er að störfum á vegum Kristniboðssambandsins í Vestur-Japan.

Kristniboðssambandið er einnig samstarfsaðili Sat7, sjónvarpsstarfs í Mið-Austurlöndum og Norður-Afríku sem margar kirkjur á svæðinu sameinast um.

Sent er út á arabísku, farsi og tyrknesku fyrir utan sérstaka barnarás og aðra skólarás fyrir börn í flóttamannabúðum og konur sem ekki hafa hlotið menntun.

Þá er svipað starf stutt í Pakistan.

Á sviði þróunarsamvinnu og kærleiksþjónustu hafa kristniboðar sinnt heilbrigðis- og menntamálum, byggt upp heilsugæslustöðvar og spítala og starfað þar.

Eins hafa þau sinnt uppbyggingu skóla og menntakerfisins á þeim stöðum sem þau hafa starfað.

Þannig hefur Kristniboðssambandið með stuðningi utanríkisráðuneytisins byggt um 30 kennslustofur og 15 heimavistir við rúmlega 20 skóla á liðnum 15 árum.

Hér heima stendur Kristniboðssambandið fyrir samkomum auk fræðslu- og kynningarstarfs.

Margvísleg verkefni eru styrkt fjárhagslega af Kristniboðssambandinu.

Kristniboðssambandið býður upp á ókeypis íslenskukennslu fyrir nýbúa og útlendinga áttunda skólaveturinn í röð.

Hefur sú aðstoð mælst mjög vel fyrir.

Meðal annarra fjáröflunarverkefna Kristniboðssambandsins má nefna sölu á notuðum frímerkjum og mynt, jólabasar, verkefnið Látið skóna ganga aftur og nytjamarkaðinn, Basarinn í Austurveri.

Kristniboðsalmanakið fyrir árið 2023 er væntanlegt síðar í mánuðinum.

Því verður dreift ókeypis í mörgum kirkjum landsins og í Basarnum, nytjamarkaði, Austurveri, Háaleitisbraut 68.

 

slg



Myndir með frétt

  • Biskup

  • Flóttafólk

  • Hjálparstarf

  • Kærleiksþjónusta

  • Kirkjustarf

  • Messa

  • Safnaðarstarf

  • Samfélag

  • Samstarf

  • Söfnun

  • Alþjóðastarf

Ólafur Egilsson

Vinir Hjálparstarfsins fræðast um starfið

24. apr. 2024
...stilla saman strengi
Söngvahátíð 7.jpg - mynd

Söngvahátíð barnanna á Akureyri og í Reykjavík

23. apr. 2024
...börnin syngja í útvarpsmessu á sumardaginn fyrsta
Bænagangan 3.jpg - mynd

Bænagangan 2024

23. apr. 2024
...á sumardaginn fyrsta