Kirkjur á ferð og flugi

8. desember 2022

Kirkjur á ferð og flugi

Svalbarðskirkja flutt fyrir 50 árum -mynd akureyri.net

Fimmtíu ár eru liðin frá því Minjasafnskirkjan á Akureyri var flutt í heilu lagi frá Svalbarðsströnd til Akureyrar.

En það er ekki oft sem kirkjur eru fluttar í heilu lagi.

Hvað þá að þær taki sér far á vörubílspalli.

Þannig hófst ferðalag kirkjunnar á Svalbarði við Eyjafjörð 26. og 28. október árið 1970.

Kirkjan hafði þá þjónað hlutverki sínu vel frá árinu 1846 og er höfundi sínum, Þorsteini Daníelssyni frá Skipalóni til sóma.

"Byggingin er gott dæmi um einfaldar og látlausar íslenskar timburkirkjur frá miðri 19. öld,“ segir Haraldur Þór Egilsson, safnstjóri Minjasafnsins á Akureyri í viðtali við akureyri.net

 

En allt hefur sinn tíma.

Árið 1957 voru ekki lengur not fyrir þessa litlu kirkju á Svalbarði og ný steinkirkja tók við hlutverki hennar.

Árið 1965 fékk stjórn Minjasafnsins á Akureyri heimild til að veita gömlu kirkjunni á Svalbarði viðtöku og flytja hana á lóð safnsins.

Kirkjan var flutt á vagni til Akureyrar haustið 1970.

Hún beið af sér óveður á pallinum en var svo flutt að nýjum grunni í garði Minjasafnsins á Akureyri þar sem Akureyrarkirkja stóð áður.

Þórður Friðbjarnarson, safnstjóri, hafði veg og vanda að verkinu og viðgerðunum sem þurfti að ráðast í.

Kirkjan var svo vígð á ný 10. desember árið 1972 og hefur síðan gegnt sínu tvíþætta hlutverki sem safnhús og guðshús og heitir nú Minjasafnskirkjan.

 

Nokkuð hefur verið um að kirkjur hafi verið fluttar úr einum stað í annan.

Oft er sagt að Safnkirkjan í Árbæ hafi verið flutt til Reykjavíkur frá Silfrstöðum í Blönduhlíð í Skagafirði.

Raunin er þó önnur.

Torfkirkjan á Silfrastöðum þjónaði sókninni í rúma hálfa öld, en árið 1896 var hún tekin niður og flutt heim að bænum og ný reist í hennar stað.

Úr timbri gömlu kirkjunnar var smíðuð baðstofa og búið í henni til ársins 1950.

Baðstofan var tekin niður árið 1959 og viðir úr henni fluttir á Árbæjarsafn.

Flateyjarkirkja á Skjálfanda var upphaflega reist að Brettingsstöðum á Flateyjardal árið árið 1897.

Kirkjusmiðurinn var Jóhann Bessason á Skarði.

Árið 1953 fór síðasti bærinn á Flateyjardal í eyði og tveimur árum síðar var Brettingastaða-Flateyjarsókn sameinuð Húsavíkurprestakalli.

Stuttu síðar var kirkjan tekin niður og endurreist í Flatey, þar sem var þá blómleg byggð og endurvígð þar 17. júlí árið 1960.

Björgvin Pálsson húsasmíðameistari í Hrísey var fenginn til að hafa umsjón með verkinu en sóknarbörn lögðu á sig ómælda vinnu og erfiði við að rífa kirkjuna og flytja hverja fjöl á árabátum milli lands og eyjar.

Á fyrstu árum byggðar á Hesteyri var þar bænhús sem var útkirkja frá kirkjunni á Stað í Aðalvík.

Nokkru eftir að Brödrene Bull reistu hvalveiðistöð sína á Hesteyri árið 1894 ákváðu þeir að gefa Hesteyringum kirkju.

Haustið 1960 var Hesteyrarkirkja tekin niður, flutt til Súðavíkur og endurbyggð þar í nokkuð breyttri mynd.

Vera má að fleiri kirkjur hafi verið fluttar hér á landi.

Nýlega hefur kirkjan.is sagt frá flutningi núverandi Silfrastaðakirkju í heilu lagi á vörubílspalli út á Sauðárkrók til viðgerðar.

 

Við vígslu Minjasafnskirkjunnar fyrir 50 árum  var sungið eftirfarandi ljóð eftir Kristján frá Djúpalæk:

 



Vígsluljóð
Þú gamla, lága guðshús
sem gestum opnar dyr,
Enn leið í djúpri lotning
Er lögð til þín sem fyr.
Vor önn er yndisvana,
vor auður gerviblóm,
því heimur, gullli glæstur,
án guðs er fánýtt hjóm.

Fyrr gestur göngumóður
við grátur þínar kraup.
Margt tár í þögn og þjáning
á þessar fjalir draup.
Hér æskan ljúf í auðmýkt
sín örlög guði fól.
Hér skyggðu þyngstu skuggar.
Hér skein og björtust sól.

Þú varst hin milda móðir.
Þín miskunn allra beið.
Þú veittir hjálp og hugdirfð
að halda fram á leið.
Það ljós, er lýðum barstu,
um langa vegu sást.
- Þú enn ert vonum viti.
Þín vegsögn engum brást.

Og kæra, aldna kirkja,
í kyrrþey beiðstu þess
að yngjast, endurvígjast,
og öðlast fyrri sess.
Enn bljúg, í hljóði beðin,
er bæn í fangi þér.
- Hið gamla, lága guðshús
vor griðarstaður er.

 

slg



Myndir með frétt

  • List og kirkja

  • Menning

  • Samstarf

  • Kirkjustaðir

Söngvahátíð 7.jpg - mynd

Söngvahátíð barnanna á Akureyri og í Reykjavík

23. apr. 2024
...börnin syngja í útvarpsmessu á sumardaginn fyrsta
Bænagangan 3.jpg - mynd

Bænagangan 2024

23. apr. 2024
...á sumardaginn fyrsta