Hún sótti um

12. maí 2023

Hún sótti um

Garðakirkja á Álftanesi - mynd: hsh

Biskup Íslands auglýsti nýlega eftir presti til þjónustu í Garðaprestakalli í Kjalarnesprófastsdæmi.

Umsóknarfrestur rann út 5. maí 2023.

Tvær umsóknir sem bárust.

Annar umsækjandinn hefur dregið umsókn sína til baka.

Hinn umsækjandinn er sr. Matthildur Bjarnadóttir.


Prestakallið

Garðaprestakall skiptist í tvær sóknir, Garðasókn og Bessastaðasókn.

Garðasókn nær yfir öll hverfi Garðabæjar að Álftanesinu undanskildu sem tilheyrir Bessastaðasókn.

Flest allir íbúar búa í þéttbýli en nokkrir bæir eru þó enn eftir á sunnanverðu Álftanesi.

Safnaðarmeðlimir sem greiddu sóknargjöld voru tæplega ellefu þúsund 1. desember sl. eða 9.206 í Garðasókn og 1.395 í Bessastaðasókn.

Í Garðasókn eru sjö grunnskólar, 14 leikskólar, einn fjölbrautaskóli og eitt hjúkrunarheimili.

Prestar sóknarinnar eru í tengslum eða í þjónustu við allar þessar stofnanir og þá sérstaklega hjúkrunarheimilið en þar er m.a. mánaðarleg þjónusta allt árið.

Garðasókn er gamall og rótgróinn söfnuður sem rekur sögu sína langt aftur í aldir, en Garðasókn var endurvakin árið 1960.

Starfinu fylgja viðbótarskyldur við önnur prestaköll í prófastsdæminu, önnur prófastsdæmi, sem og við Þjóðkirkjuna – biskupsstofu og önnur kirkjuleg stjórnvöld.

Allar gildar umsóknir fara til valnefndar sem fer yfir allar umsóknir og boðar umsækjendur til viðtals innan þriggja vikna frá lokum umsóknarfrests, sbr. 8. gr.  starfsreglna  um ráðningu í prestsstörf.

Valnefnd skal ná samstöðu um einn umsækjenda en valið skal byggt á fyrirliggjandi þarfagreiningu og rökstutt á grundvelli hennar.

Í framhaldinu ræður biskup viðkomandi í starfið, að því gefnu að hann telji niðurstöður valnefndar reistar á lögmætum sjónarmiðum.




slg





  • Kirkjustaðir

  • Prestar og djáknar

  • Prófastur

  • Starf

  • Starfsumsókn

  • Umsókn

  • Biskup

Söngvahátíð 7.jpg - mynd

Söngvahátíð barnanna á Akureyri og í Reykjavík

23. apr. 2024
...börnin syngja í útvarpsmessu á sumardaginn fyrsta
Bænagangan 3.jpg - mynd

Bænagangan 2024

23. apr. 2024
...á sumardaginn fyrsta