Sálmur 19
- Þitt lof, ó, Drottinn vor,
- himnarnir hljóma,
- þitt heilagt nafnið prísa ber.
- Vor jörð skal söngvana enduróma:
- Þú alheims stýrir, lof sé þér.
- Þú reistir hvelfingar himinsins heima,
- þín hönd gaf ljósið skærri sól.
- Þú ekur sigrandi gegnum geima
- á geislans braut að ysta pól.
Gellert - Sb. 1945 - Þorsteinn Gíslason
Sálmur 20
- Guð, allur heimur, eins í lágu' og háu,
- er opin bók, um þig er fræðir mig,
- já, hvert eitt blað á blómi jarðar smáu
- er blað, sem margt er skrifað á um þig.
- Þá morgunsólin upp í austri stígur,
- á æðra himinljós hún bendir mér,
- og þá er sólin hægt í vestri hnígur,
- á hvíld og frið hún bendir mér hjá þér.
- Þá allt til lífsins vorið fagra vekur,
- það von til þín í brjósti glæðir mér,
- og þegar aftur hausta' og húma tekur,
- það hvetur mig að leita skjóls hjá þér.
- Þá yfir löndin stormur geisar stríður,
- með sterkum róm hann boðar almátt þinn,
- og þá um vanga blærinn leikur blíður,
- hann boðar þú sért ljúfur faðir minn.
- Þá eldur skær með björtum loga brennur,
- hann birtir skýrt, að heit þín gæskan er
- og svalalind, er sífellt áfram rennur,
- hún sýnir, að þín miskunn aldrei þver.
- Þá heyri eg glaða himinfugla syngja,
- þeir hrósa þinni dýrð, sem öllum skín,
- og andvörp þau, er einatt hjörtun þyngja,
- þó upp um síðir leita, Guð, til þín.
- Ó, veit mér, Guð, þín verk ég skoða megi,
- þau veri jafnan hjartans unun mín.
- Og þótt þín hátign holdið stundum beygi,
- mitt hjarta reisir aftur náðin þín.
Sb. 1886 - Valdimar Briem
Sálmur 21
- Minn Guð og Herra' er hirðir minn,
- mér hjálpararm hann réttir sinn.
- Ég veit hann æ mér vill hið besta,
- ég veit hann ei mig lætur bresta
- það neitt, er getur gagnað mér,
- því góður hirðir Drottinn er.
- Um blómum stráða, græna grund
- mig Guðs míns leiðir föðurmund
- að svalalindum silfurskærum
- og svalar mér úr lækjum tærum.
- Hans líknarhöndin hressir mig
- og hjálpar mér á réttan stig.
- Og þótt ég gangi' um dauðans dal,
- hans dimma mér ei ógna skal.
- Ef geng ég trúr á Guðs míns vegi,
- mér grandar dauðinn sjálfur eigi.
- Þín hrísla' og stafur hugga mig,
- minn hirðir, Guð, ég vona' á þig.
Sl 23 - Sb. 1886 - Valdimar Briem
Sálmur 22
- Þú, mikli Guð, ert með oss á jörðu,
- miskunn þín nær en geisli á kinn.
- Eins og vér finnum andvara morguns,
- eins skynjar hjartað kærleik þinn.
- Í dagsins iðu, götunnar glaumi,
- greinum vér þig með ljós þitt og frið.
- Hvar sem ein bæn er beðin í hljóði,
- beygir þú kné við mannsins hlið.
- Hvar sem er unnið, hugur þinn starfar,
- hús vor og tæki eru þín verk.
- Þú vilt vér teljum vort það, sem gefur
- viskan þín rík og höndin sterk.
- Djúp er þín lind, sem lífgar og nærir,
- lófinn þinn stór, vort eilífa hlé.
- Gjör þú oss, Kristur, Guðs sonur góði,
- greinar á þínu lífsins tré.
Frostenson - Sigurbjörn Einarsson
Sálmur 23
- Þín miskunn, ó, Guð, er sem himinninn há
- og hjarta þíns trúfestin blíða,
- þinn heilagan vísdóm má hvarvetna sjá
- um heims alla byggðina fríða.
- Sem rammbyggðu fjöllin þín réttvísin er,
- sem reginhaf dómur þinn hreini.
- Vor Guð, allra þarfir þú glögglega sér
- og gleymir ei aumingjans kveini.
- Já, dásöm er náð þín og dag sérhvern ný,
- ó, Drottinn, í skaut þitt vér flýjum.
- Vér hræðast ei þurfum í hælinu því,
- er hörmunga dimmir af skýjum.
- Ef sálirnar þyrstir, þú svölun þeim lér,
- þær saðning fá hungraðar frá þér.
- Vor Guð, þínu' í ljósinu ljós sjáum vér,
- og lífsins er uppspretta hjá þér.
Sl 36 - Ingemann - Sb. 1886 - Helgi Hálfdánarson
Sálmur 24
- Lofið Guð, ó, lýðir, göfgið hann,
- heiðrið Guð, ó, heiðrið föður þann,
- tignið Drottins tignarnafn, hans tign ei breytist,
- miklið Drottins náðarnafn, hans náð ei þreytist,
- mildin hans við menn ei þrýtur,
- miskunn hans til aumra lítur,
- ástin hans ei enda hlýtur,
- eilíf tryggð hans aldrei bregst.
- Öll hans stjórn og umsjá ber um elsku vottinn.
- Lofi nafn hans lýður hver, já, lofið Drottin.
Sl 117 - Sb. 1671 - Jón Þorsteinsson - Helgi Hálfdánarson
Sálmur 25
- Englar hæstir, andar stærstir,
- allir lofi Drottins nafn.
- Allt, sem andar, allt, sem lifir,
- uppi, niðri, himnum yfir,
- dýrki, lofi Drottins nafn.
- Himinn fagur, hver einn dagur,
- hver ein nótt með stjörnusafn,
- stormar, þrumur, hvað sem hræðir,
- hvað sem vekur, örvar, glæðir,
- lofi Herrans heilagt nafn.
- Æðstum Drottni aldrei þrotni
- eilíft lof og þakkargjörð.
- Syngið, feður, syngið, mæður,
- syngið, niðjar, menn og bræður.
- Heiðri Drottin hæð og jörð.
Blackie - Sb. 1945 - Matthías Jochumsson
Sálmur 26
- Nú gjaldi Guði þökk
- hans gjörvöll barnahjörðin,
- um dýrð og hátign hans
- ber himinn vott og jörðin.
- Frá æsku vorri var
- oss vernd og skjól hans náð,
- og allt vort bætti böl
- hans blessað líknarráð.
- Vor Guð, sem gjörvallt á,
- oss gefi snauðum mönnum
- í hjörtun æðstan auð
- af andans gæðum sönnum,
- í náð og sátt við sig
- oss seka taki hann
- og leiði loks til sín
- í ljóss og dýrðar rann.
- Guð faðir, þökk sé þér
- og þínum dýrsta syni
- og æðstum anda skýrð
- af engla' og manna kyni.
- Þitt vald, sem var og er
- og verður alla tíð,
- sé heiðrað hátt um jörð
- og himin ár og síð.
Rinckart - Sb. 1886 - Helgi Hálfdánarson