Sálmur 335
- Guð helgur andi, heyr oss nú,
- ó, heyr, vér biðjum: veit oss rétta trú,
- huggun hjörtum mæddum
- heims í eymda kjörum,
- svölun sálum hræddum,
- síðast burt er förum.
- Streym þú, líknarlind.
- Þú blessað ljós, ó, lýs þú oss
- í líknarskjólið, undir Jesú kross.
- Veit oss hjálp að hlýða
- hirði vorum góða,
- lausnaranum lýða,
- lífgjafanum þjóða.
- Streym þú, líknarlind.
- Þú kærleiksandi, kveik í sál
- þann kærleikseld, er helgi verk og mál,
- að í ást og friði
- æ vér lifað fáum,
- uns að æðsta miði
- allir loks vér náum.
- Streym þú, líknarlind.
- Þú huggun æðst í hverri neyð,
- oss hjálpa þú og styð í lífi' og deyð.
- Veit þú, að oss eigi
- afl og djörfung þrjóti,
- er hinn óttalegi
- óvin ræðst oss móti.
- Streym þú, líknarlind.
- Guð helgur andi', á hinstu stund
- oss hugga þú með von um Jesú fund.
- Þá er þrautin unnin,
- þá er sigur fenginn,
- sælusól upp runnin,
- sorg og þrenging engin.
- Streym þú, líknarlind.
Lúther - Sb. 1589
Helgi Hálfdánarson