Sálmur

Sálmur 724

  • Leiftra þú, sól, þér heilsar hvítasunna,
  • heilaga lindin alls, sem birtu færir
  • hann, sem hvern geisla alheims á og nærir,
  • eilífur faðir ljóssins skín á þig,
  • andar nú sinni elsku yfir þig.
  • Ljóma þú, jörð, þér lýsir hvítasunna,
  • lífgjöf þín, Kristur, risinn upp frá dauðum,
  • opnar sinn himin heimi vonarsnauðum,
  • heilagur andi streymir yfir þig,
  • andar nú sinni elsku yfir þig.
  • Geisla þú, sál, mót sól þíns lífs og fagna,
  • sjá, það er vor á jörð, sem Drottinn gefur,
  • vittu það, barn, og vakna þú, sem sefur,
  • vitjar þín andi Guðs og skín um þig,
  • andar nú sinni elsku inn í þig.
  • Lýstu mér, sólin hvíta, heita, bjarta,
  • heilagi andi Guðs og Krists, hans sonar,
  • uppspretta ljóss og friðar, lífsins vonar,
  • ljúk mér upp, kom þú, streym þú yfir mig,
  • anda nú þinni elsku inn í mig.
Sigurbjörn Einarsson