StjórnsýslaBiskup Íslands er æðsti embættismaður kirkjunnar. Hann hefur tilsjón með kristnihaldi, kenningu kirkjunnar og starfi hennar í landinu. Kirkjuþing hefur æðsta vald í málefnum Þjóðkirkjunnar innan lögmæltra marka. Kirkjuþingsfulltrúar eru kjörnir til fjögurra ára í senn, 17 leikmenn og 12 vígðir menn. Forseti Kirkjuþings kemur úr hópi leikmanna. Kirkjuráð fer með framkvæmdarvald í málefnum Þjóðkirkjunnar. Nánar tiltekið fer Kirkjuráð með framkvæmd sameiginlegra málefna Þjóðkirkjunnar, þar á meðal verkefna sem lög og stjórnvaldsreglur ætla því og erinda sem vísað er til þess Biskupsstofa er embættisskrifstofa Biskups Íslands og skrifstofa Kirkjuráðs og kirkjuþings. * * * Umsóknir í sjóði kirkjunnarAthugið: Umsóknarfrestur í sjóði kirkjunnar vegna ársins 2011 rann út 15. júní 2010 og eru umsóknarformin því ekki lengur aðgengileg á þjónstuvefnum. Umsóknarform vegna ársins 2012 verða svo aðgengileg um áramótin. Umsóknarform fyrir sjóði kirkjunnar er að finna á Þjónustuvef kirkjunnar (https://innri.kirkjan.is):
Þjónandi prestar og forsvarsmenn sóknanefnda hafa aðgang að þjónustuvefnum. Aðstoðarbeiðnir vegna aðgangs að vefnum má senda á thjonustuvefur@kirkjan.is. Aðrir einstaklingar sem hafa hug á að sækja um í sjóðina geta gert það í gegnum form.kirkjan.is. Þeir þurfa að senda beiðni um aðgangsheimildr á ofangreint netfang, tilgreina þarf kennitölu viðkomandi. Magnhildur Sigurbjörnsdóttir (Magnhildur.Sigurbjornsdottir@kirkjan.is) veitir upplýsingar um umsóknir í sjóði kirkjunnar. Umsóknarfrestur í sjóðina vegna hvers árs er til 15. júní árið á undan. * * * Ársreikningar sókna og kirkjugarðaEyðublöð fyrir ársreikninga sókna og prófastsdæma eru nú aðgengileg hér á vefnum: * * * Uppgjör sóknargjalda 2009Hægt er að nálgast uppgjör sóknargjalda 2009 inn á vef Fjársýrslu ríkisins. * * * Uppgjör vegna kirkjugarðagjaldaUpplýsingar er að finna á gardar.is/2009
|
![]() |
||||||||||