Opinn eldur á Kjalarnesi

13. desember 2017

Opinn eldur á Kjalarnesi

Gjörningurinn “Opinn eldur” fór fram við útialtarið við Esjuberg á Kjalarnesi kl. 17 þann 10. desember 2017. Í ár er haldið upp á það að 500 ár eru síðan Marteinn Lúther, sem kirkjudeild okkar er kennd við, hengdi upp 95 mótmæli til siðbótar á hurð hallarkirkjunnar í Wittenberg. Fyrir réttlætinu barðist Lúther og var bannfærður af páfa fyrir vikið.

Hinn 10. desember árið 1520 brenndi Lúther bannfæringarbréf páfa (Exurge Domine) ásamt nokkrum lagabókum rómversk-kaþólsku kirkjunnar og fleiri ritum sem hann taldi að stangaðist á við boðskap Biblíunnar. Eftir þennan atburð gaf páfi frá sér endanlega bannfæringarskipun eða hinn 3. janúar 1521. Á þeim stað er brennan fór fram í Wittenberg stendur nú Lúthers – eikin.

Mannréttindadagur Sameinuðu þjóðanna er einnig 10. desember og flutti Margrét Steinarsdóttir framkvæmdastjóri Mannréttindaskrifstofu Íslands ávarp við brennuna. Fulltrúar barna og unglinga, útlendinga, kvenna og fleiri hópa brenndu á táknrænan hátt það óréttlæti sem fólk hefur orðið fyrir. Öllum viðstöddum var boðið að brenna óréttlæti heimsins. Blöð og skriffæri voru á staðnum.

Nefnd um fimm alda minningu siðbótar bauð til þessa gjörnings og var Sögufélagið Steini á Kjalarnesi samstarfsaðili ásamt sóknarpresti og sóknarnefnd Brautarholtssóknar. Sögufélagið Steini hefur haft veg og vanda að því að reisa útialtarið við Esjuberg.
Sóknarnefnd Brautarholtssóknar bauð síðan til aðventuhátíðar í Fólkvangi að lokinni brennu eða kl.18 og bauð gestum upp á heitt kakó og léttar veitingar. Biskup Íslands, frú Agnes M. Sigurðardóttir flutti hátíðarræðu, sunnudagaskólabörnin sungu, Hulda Björnsdóttir lék á píanó og Kirkjukór Reynivallaprestakalls söng undir stjórn Guðmundar Ómars Óskarssonar organista. Sr. Arna Grétarsdóttir sóknarprestur leiddi bæn.

Myndir frá viðburðunum sem teknar voru af Bjarna Sighvatssyni, má finna hér:
  • Menning

  • Viðburður

  • Menning

Sr. Eva Björk Valdimarsdóttir

Sr. Eva Björk Valdimarsdóttir ráðin biskupsritari

18. maí 2024
...hefur störf með nýkjörnum biskupi Íslands
Háteigskirkja

Tíu sækja um Háteigsprestakall

17. maí 2024
...umsóknarfrestur rann út 14. maí