Í söfnuðum þjóðkirkjunnar er boðið upp á fræðslu fyrir fullorðna. Hún er ætluð öllum sem vilja kynnast eða vita meira um kristna trú og Biblíuna. Fræðslan beinist líka að því að leggja fólki lið í að iðka kristna trúa á gefndi hátt og takast á við verkefni lífsins. Með henni verður líka til vettvangur til að miðla þekkingu og reynslu í samtali auk þess að tengja öll þau sem hafa áhuga á kirkju og kristni.
Eitt af markmiðum fræðslu fyrir fullorðna í kirkjunni er að hvetja fólk og efla til að taka að sér verkefni og axla ábyrgð á vettvangi Þjóðkirkjunnar.
Fræðslan er í formi námskeiða og fræðslukvölda sem fara fram í kirkjum og safnaðarheimilum. Einnig eru haldin námskeið á vettvangi Starfs-og leikmannaskóla kirkjunnar.
Fullorðinsfræðsla kirkjunnar er einnig ætluð þeim sem starfa í kirkjunni bæði launuðu starfsfólk og sjálfboðaliðum og þeim sem vilja taka virkan þátt í helgihaldi safnaðanna eða safnaðarstarfi.
Á vettvangi fullorðinsfræðslunnar er einnig reynt að efla samstarf hinna ýmsu stofnana og nefnda kirkjunnar með því að standa að sameiginlegu námskeiðshaldi í þeim tilgangi að veita fólki innsýn í hið fjölbreytta starf kirkjunnar og arfleið.
Nánar
Starfs- og leikmannaskóli kirkjunnar