Sálmabók

284. Vér játum trú á góðan Guð

Spila hljóðdæmi
0:00
0:00
hymn notes

Vér játum trú á góðan Guð.
Einn sá faðir almátt hefur,
frá eilífð heims og himna Guð.
Allt er hans og allt hann gefur.
Soninn, ljóma sinnar mildi,
sekum oss hann gefa vildi,
alla náð og ást síns hjarta,
anda heilags ljósið bjarta
og ríki það sem :,: eilíft er :,:
í upprisunnar dýrð hjá sér.

  • TSigurbjörn Einarsson 1966 – Sb. 1972
  • L15. öld – Wittenberg 1524 – Gr. 1594
    Wir glauben all an einen Gott
  • Sálmar með sama lagi
  • Eldra númer 226
  • Eldra númer útskýring T+L