Sálmabók
Spila hljóðdæmi
0:00
0:00
1 Nú dagur þver og nálgast nótt
til náða sem að kveður drótt,
ó, faðir ljóss og alls sem er,
gef öllum frið og hvíld í þér.
2 Ó, Guð, sem skjaldarskuggi þinn
oss skýli myrkrið nú um sinn,
gef þessi nótt oss verði vær,
eins vorum bræðrum nær og fjær.
3 Með föðurhendi byrg oss brár
og blítt við næsta morgunsár
með endurhresstan þrótt og þrek
sem þín og ljóssins börn oss vek.
- TSteingrímur Thorsteinsson – Sb. 1886
- LThomas Tallis 1561 – Sb. 1997TALLIS' CANON
- Sálmar með sama lagi
- Eldra númer 470
- Eldra númer útskýring T+L