Sálmabók
55. Syng, barnahjörð
Spila hljóðdæmi
0:00
0:00
1 Syng, barnahjörð, syng Guði dýrð,
hann gaf sinn eigin son.
Bjóð honum heim, bú honum stað
:,: með bæn og þakkargjörð, :,:
með bæn og hjartans þakkargjörð.
2 Syng, foldardrótt, um frið á jörð
er gefa vill oss Guð.
Um lönd og höf, um loft og geim
:,: allt lofi Drottins náð, :,:
allt lofi Drottins föðurnáð.
3 Hverf burt frá allri synd og sorg
og sæst við alla menn.
Guðs náðar lind, Guðs góði son
:,: mun græða öll þín mein, :,:
mun græða öll þín sár og mein.
4 Guðs ríki mun með rétti' og náð
sér ryðja sigurbraut.
Sjá Drottins náð, Guðs dýrð og vald
:,: í dásemd kærleik hans, :,:
í dásemd, eilífs kærleik hans.
- TIsaac Watts 1719 – Jóhann S. Hannesson, 1968Joy to the World
- LGeorg F. Händel 1741 – Lowell Mason 1836ANTIOCH / Joy to the World