Sálmabók

592. Guðs föður geisli og kraftur

Spila hljóðdæmi
0:00
0:00
hymn notes

1 Guðs föður geisli' og kraftur,
þín gæskan huggar mig.
Guðs mynd þú mér gafst aftur
er mína tókstu' á þig.
Ný yfirskrift þín náðin er.
Þinn kýs þú heiður, Herra,
og hlýðni' og ást af mér.

2 Lát gjörvallt líf mitt gjalda
þér, Guð minn, ást og trú
og engu aftur halda
sem af mér heimtar þú
svo eilíf sé ég eignin þín
og þér mín breytni þjóni
og þakklát sálin mín.

  • TGr. 1730 – Stefán Thorarensen – Vb. 1861 – Sb. 1886
  • LÞýskt þjóðlag – Thomissøn 1569 – Gr. 1594
    Hilf Gott, dass mir gelinge
  • Sálmar með sama lagi
  • Eldra númer 358
  • Eldra númer útskýring T+L