Sálmabók

725. Vér stöndum á bjargi

Spila hljóðdæmi
0:00
0:00
hymn notes

1 Vér stöndum á bjargi sem bifast ei má,
hinn blessaði frelsari lifir oss hjá,
hans orð eru líf vort og athvarf í neyð,
hans ást er vor kraftur í lífi' og í deyð.

2 Þótt himinninn farist og hrynji vor storð
og hrapi hver stjarna, þá varir hans orð,
þótt eygló hver slokkni við aldanna hrun
hans eilífa loforð ei bregðast þó mun.

3 Hann sagði: „Minn þjónn verður þar sem ég er
og þeir sem mig elska fá vegsemd hjá mér.
Ég lifi' æ og þér munuð lifa og sá
sem lifir og trúir skal dauðann ei sjá.“

4 Vér treystum þeim orðum og trúum þig á,
með titrandi hjörtum þig væntum að sjá,
þú, frelsarinn ástkæri, föðurins son,
vér fylgjum þér glaðir, vor lifandi von.

  • TFriðrik Friðriksson, 1917 – Sb. 1945
  • LWilliam Croft 1708 – BÞ 1903
    HANOVER / O Worship the King
  • Sálmar með sama lagi
  • Eldra númer 42
  • Eldra númer útskýring T+L