Sálmabók
131. Dýrð, vald, virðing
Spila hljóðdæmi
0:00
0:00
Dýrð, vald, virðing og vegsemd hæst,
viska, makt, speki' og lofgjörð stærst
sé þér, ó, Jesú, Herra hár,
og heiður klár.
Amen, amen um eilíf ár.
- THallgrímur Pétursson Ps. 50
- LÞýskt lag frá 16. öld – Sb. 1619 – Sb. 1972Eins og sitt barn
- Eldra númer 146
- Eldra númer útskýring T+L