Sálmabók
133. Vér páskahátíð höldum
Spila hljóðdæmi
0:00
0:00
1 Vér páskahátíð höldum
og honum þakkir gjöldum
er sætti Guð við sekan mann
og sjálfan dauðann yfirvann.
Hallelúja.
2 Hann reis úr dauðans dróma
í dýrðar morgunljóma,
því honum syngi' öll heimsins þjóð
af hjarta dýrðleg sigurljóð.
Hallelúja.
3 Hallelúja, hallelúja, hallelúja!
Því honum syngi' öll heimsins þjóð
af hjarta dýrðleg sigurljóð.
Hallelúja.
- T12. öld – Sb. 1589 – Valdimar Briem – Sb. 1886Christ ist erstanden
- L12. öld – Wittenberg 1529 – Sb. 1589Christ ist erstanden
- Eldra númer 151
- Eldra númer útskýring T+L