Sálmabók

138. Sjá ljóma yfir húmsins höf

Spila hljóðdæmi
0:00
0:00
hymn notes

1 Sjá ljóma yfir húmsins höf
í heiði sól með lífsins gjöf
er skín í dag frá Drottins gröf.
Hallelúja, hallelúja, hallelúja, hallelúja.
Vér miklum þig, Kristur Maríuson.

2 Hann hefur sjálfan dauðann deytt,
hans dimmu nótt og broddum eytt
og krossins þraut í blessun breytt.
Hallelúja...

3 Nú fagna þeir sem þekkja hann
og þakka stríðið sem hann vann
til lausnar fyrir fallinn mann.
Hallelúja ...

4 Í sælli gleði syngjum vér
þeim sigri lof sem fenginn er
og segjum: Drottinn, dýrð sé þér!
Hallelúja ...

5 Já, dýrð sé þér, Guðs þrenning há.
Lát þína elsku sigri ná
í hjarta manns sem himnum á.
Hallelúja ...

  • TÞýskur sálmur frá 16. öld – Sigurbjörn Einarsson 1987 – Vb. 1991
    Wir wollen alle fröhlich sein
  • L14. öld – Hohenfurth 1410 – Bæheimsbræður 1544 – Wittenberg 1573 – Vb. 1991
    Wir wollen alle fröhlich sein
  • Eldra númer 577
  • Eldra númer útskýring T+L