Sálmabók

140. Lof sé þér, Guð, því lífsins sól

Spila hljóðdæmi
0:00
0:00
hymn notes

1 Lof sé þér, Guð, því lífsins sól
ljómar frá gröf sem nóttin fól,
krýnir þíns sonar konungsstól.
Hallelúja, hallelúja, hallelúja.

2 Hann vann það stríð sem stærst var háð,
sterkur og hreinn í ást og náð
svipti hann dauðann sinni bráð.
Hallelúja, hallelúja, hallelúja.

3 Upprisni Drottinn, dýrð sé þér,
dögun þíns ríkis fögnum vér,
lifandi von oss vakin er.
Hallelúja, hallelúja, hallelúja.

4 Vér sem þig játum viljum nú
vakna til lífs sem gefur þú,
helga oss þér í hjartans trú.
Hallelúja, hallelúja, hallelúja.

5 Eilífum rómi öll þín hjörð,
englar á himni, menn á jörð,
syngur lof þér og þakkargjörð.
Hallelúja, hallelúja, hallelúja.

  • TMichael Weisse 1531 – Sigurbjörn Einarsson 1987 – Vb. 1991
  • LMelchior Vulpius 1609 – Vb. 1991
    Gelobet sei Gott um höchsten Thron
  • Eldra númer 578
  • Eldra númer útskýring T+L