Sálmabók

145. Upprisinn er hann

Spila hljóðdæmi
0:00
0:00
hymn notes

Upprisinn er hann, húrra, húrra,
:,: hann lifir, hann lifir, hann lifir enn. :,:

1 Tóm er gröfin og opin,
hví er ekki meistarinn hér?
Klæðin hans liggja þar inni enn
en enginn veit hvar hann er,
enginn veit hvar hann er.
Upprisinn er hann ...

2 Glöð við þökkum þér, Jesús,
við þekkjum hver máttur þinn er.
Þú gafst þig sjálfan til lausnar lýð
svo líf eigum æ með þér,
líf eigum æ með þér.
Upprisinn er hann ...

3 Nýja menn vill Guð gera
og gleðin mun ríkja því
breytast mun geimur í geislaflóð
er Guð skapar allt á ný,
Guð skapar allt á ný.
Upprisinn er hann ...

  • TMargareta Melin 1971 – Kristján Valur Ingólfsson 1974 – Vb. 2013
    Uppstått har Jesus
  • LLars Åke Lundberg 1972 – Vb. 2013
    Uppstått har Jesus
  • Eldra númer 819
  • Eldra númer útskýring T+L