Sálmabók

154. Þú, Jesús, ert vegur

Spila hljóðdæmi
0:00
0:00
hymn notes

1 Þú, Jesús, ert vegur til himinsins heim,
í heimkynnið sælunnar þreyða.
Æ, lát oss ei villast frá veginum þeim
á veginn til glötunar breiða.

2 Þú, Jesús, ert sannleikur, lát oss fá lært
ei lyginnar röddum að hlýða
en veit að oss öllum sé indælt og kært
af alhug þitt sannleiksorð blíða.

3 Þú, Jesús, ert lífið sem dauðann fær deytt,
lát dauðann úr sálunum víkja
en lífið sem eilífan unað fær veitt
með almættiskrafti þar ríkja.

  • THelgi Hálfdánarson – Sb. 1886
  • LJohan P.E. Hartmann 1852 – JH 1885
    Til himlene rækker din miskundhed
  • Sálmar með sama lagi
  • Eldra númer 45
  • Eldra númer útskýring T+L
  • Biblíutilvísun Jóh. 14.6