Sálmabók

179. Minn Guð og Herra er hirðir minn

Spila hljóðdæmi
0:00
0:00
hymn notes

1 Minn Guð og Herra' er hirðir minn,
mér hjálpararm hann réttir sinn.
Ég veit hann æ mér vill hið besta,
ég veit hann ei mig lætur bresta
það neitt er getur gagnað mér
því góður hirðir Drottinn er.

2 Um blómum stráða, græna grund
mig Guðs míns leiðir föðurmund
að svalalindum silfurskærum
og svalar mér úr lækjum tærum.
Hans líknarhöndin hressir mig
og hjálpar mér á réttan stig.

3 Og þótt ég gangi' um dauðans dal,
hans dimma mér ei ógna skal.
Ef geng ég trúr á Guðs míns vegi
mér grandar dauðinn sjálfur eigi.
Þín hrísla' og stafur hugga mig,
minn hirðir, Guð, ég vona' á þig.

  • TValdimar Briem – Sb. 1886
  • LDouglas Brotchie 2001
  • Tilvísun í annað lag
  • Eldra númer 21
  • Eldra númer útskýring T
  • Biblíutilvísun Sálm. 23; Lúk. 15.3–5