Sálmabók
181. Til mín skal börnin bera
Spila hljóðdæmi
0:00
0:00
1 Til mín skal börnin bera,
svo býður lausnarinn,
þeim athvarf vil ég vera
og veita kærleik minn.
Ég fæddist fátækt í
sem barn, að börn þess njóti
og blessun alla hljóti
af ástarundri því.
2 Vor Jesús börnin blíður
að brjósti leggur sér
og þeim hið besta býður,
það borgarréttur er
með himins helgri þjóð,
hann erfð þeim æðsta veitir
og allri sælu heitir
sitt fyrir blessað blóð.
3 Til Krists því koma látið,
þér kristnir, börnin smá
og hæsta heill það játið
að hans þau fundi ná.
Ó, berið börn til hans,
hann virðist við þeim taka,
þau voði má ei saka
í faðmi frelsarans.
- TCornelius Becker um 1600 – Helgi Hálfdánarson – Sb. 1886Lasset die Kindlein kommen
- LLyon 1557 – Sb. 1589Helft mir Gottes Güte preisen
- Eldra númer 250
- Eldra númer útskýring T+L
- Biblíutilvísun Mark. 10.13–16