Sálmabók

206. Sælir þeir er sárt til finna

Spila hljóðdæmi
0:00
0:00
hymn notes

1 Sælir þeir er sárt til finna
sinnar andans nektar hér,
þeir fá bætur þrauta sinna,
þeirra himnaríkið er.

2 Sælir þeir er sýta' og gráta
sorgin beisk þó leggist á,
Guð mun hugga, Guð mun láta
gróa sár og þorna brá.

3 Sælir þeir sem hógvært hjarta
hafa' í líking frelsarans.
Þeir sem helst með hógværð skarta
hlutdeild fá í arfleifð hans.

4 Sælir þeir sem þess hins rétta
þorsta' og hungurs finna til.
Þeim skal svala, þá skal metta,
þeim skal snúast allt í vil.

5 Sælir þeir sem vorkunn veita,
vægan dóm þeir skulu fá.
Eins og þeir við aðra breyta
aftur verður breytt við þá.

6 Sælir allir hjartahreinir,
hjarta þess sem slíkur er
sælu öllu æðri reynir,
auglit Drottins blítt það sér.

7 Sælir allir sáttfýsandi,
síðar friðarljós þeim skín,
friðarins Guð á friðarlandi
faðmar þá sem börnin sín.

8 Sælir þeir er sæta þungum
svívirðingum mönnum hjá,
aftur þeir af engla tungum
öðlast vegsemd himnum á.

  • TValdimar Briem – Sb. 1886
  • LJohann F. Reichardt 1790 – JH 1906
    Immer muß ich wieder lesen
  • Eldra númer 201
  • Eldra númer útskýring T+L
  • Biblíutilvísun Matt. 5.1–12