Sálmabók
208. Ég veit um himins björtu borg
Spila hljóðdæmi
0:00
0:00
1 Ég veit um himins björtu borg
í bjarma sólu hærri.
Þar er ei skuggi, synd né sorg,
hvert sár er grætt og fjærri.
2 Þar er í dýrð Guðs einkason
svo undrahár og blíður.
Hann er mín huggun, hjálp og von
og hann mér til sín býður.
3 Mig, fátækt barn og förumann,
hann fann og eiga vildi.
Til föðurlands míns leiðir hann
mitt líf í náð og mildi.
4 Guð faðir, lof ég færi þér,
ég finn í Jesú nafni
þitt helga ljós í hjarta mér,
þinn himin fyrir stafni.
- TBernt Støylen, 1906 – Sigurbjörn Einarsson 1982 – Vb. 1991Eg veit i himmerik ei borg
- LNorskt þjóðlag – Vb. 1991Eg veit i himmerik ei borg
- Eldra númer 534
- Eldra númer útskýring T+L
- Biblíutilvísun Opb. 21.1–2, 23