Sálmabók

226. Við setjumst hér í hringinn

Spila hljóðdæmi
0:00
0:00
hymn notes

Við setjumst hér í hringinn
og hendur mætast þá
en systkin öll við erum
og engum gleyma má.

1 Því Jesús elskar alla
og alla jörð á hann.
Hann veitir okkur vini
og verndar sérhvern mann.
Við setjumst hér …

2 Lof syngjum Guði góðum
sem gefur líf og von
og sendir hátt úr hæðum
til hjálpar eigin son.
Við setjumst hér …

  • TMargareta Melin 1969 – Kristján Valur Ingólfsson 1973 – Vb. 2013
    Vi sätter os i ringen
  • LLars Åke Lundberg 1970 – Vb. 2013
    Vi sätter os i ringen
  • Eldra númer 864
  • Eldra númer útskýring T+L