Sálmabók
229. Opnið kirkjur allar
Spila hljóðdæmi
0:00
0:00
1 Opnið kirkjur allar!
Opnið huga minn!
Kristur til mín kallar:
Kom þú hingað inn!
Hér í helgidómi
hans ég návist finn.
Breytir brag og hljómi
blíður lausnarinn.
2 Opnið kirkjur allar!
Opnið nýja sýn!
Þegar Kristur kallar
kvíðinn óðar dvín.
Lýkur lífsins flótta
lausnin frelsarans.
Eyðir hjartans ótta
örugg leiðsögn hans.
3 Opnið kirkjur allar!
Opnið huga minn!
Kristur til mín kallar:
Kom þú hingað inn!
Kom þú, kvíðans maður,
kirkjan griðland er.
Far svo frjáls og glaður.
Friður sé með þér.
- TGylfi Gröndal 1987 – Vb. 1991
- LTrond H.F. Kverno 1965 – Vb. 1991Gud er i sitt tempel
- Eldra númer 539
- Eldra númer útskýring T+L