Sálmabók

230. Svo hátt, svo hátt

Spila hljóðdæmi
0:00
0:00
hymn notes

1 Svo hátt, svo hátt að himnar taki undir
þér hefja vil ég lofsöng, Drottinn minn,
og allar verur allar heimsins stundir
um allan geiminn mikli kærleik þinn.

2 Svo djúpt, svo djúpt að undirdjúpin ómi
um elsku' og mátt þinn, Guð, ég syngja vil.
Í djúpi hafs og djúpi sálna hljómi
þér dýrðarsöngur enda heimsins til.

3 Svo blítt, svo blítt að veröld vikna hljóti
mér veit, ó, Guð, að syngja' um þína dýrð
og allar sálir unaðssælu njóti
sem ekki verður neinni tungu skýrð.

  • TArnór Þorláksson – Sb. 1945
  • LAndreas P. Berggreen 1856 – PG 1878
    Tænk, når engang den tåge er forsvunden
  • Sálmar með sama lagi
  • Eldra númer 216b
  • Eldra númer útskýring T+L