Sálmabók
233. Indælan, blíðan
Spila hljóðdæmi
0:00
0:00
1 Indælan, blíðan, blessaðan, fríðan
bústaðinn þinn,
Drottinn minn, þrái' eg, þar kýs að fái' eg
þrátt komið inn.
Lifandi Guð, í þíns helgidóms hús
hugurinn stefnir til lofgjörðar fús.
2 Alheimi kunnur algæsku brunnur
ertu, Guð, hreinn,
fuglum þú skýli fær svo þeir hvíli
fullrótt hver einn.
Húsið þú opnar mér heilaga þitt
hjartað svo friðarins njóti þar mitt.
3 Hingað að snúa, hér inni' að búa
hagsæld er mest,
tungunni' er kæti, Guð ef hér gæti
göfgað sem best.
Sæll er sá maður sem fögnuð þinn fær
fundið, þú Guðs barna lofsöngur skær.
- TNikolaj F.S. Grundtvig 1836 – Helgi Hálfdánarson – Sb. 1886Hyggelig, rolig, Gud er din bolig
- LViggo Sanne 1873 – JH 1885Hyggelig, rolig, Gud er din bolig
- Eldra númer 211
- Eldra númer útskýring T+L