Sálmabók
244. Ó, Guð, þín náð vort geymi láð
Spila hljóðdæmi
0:00
0:00
Ó, Guð, þín náð vort geymi láð
og gæti landsins barna,
veit hjálp og lið, veit heill og frið
og hrjáðum skjóls ei varna,
lát eflast dyggð, lát blómgast byggð,
lát blessun allt oss færa,
þíns sonar borð og sannleiksorð
lát sálir endurnæra.
- THelgi Hálfdánarson – Sb. 1886
- LAndreas P. Berggreen 1825 – PG 1861I Glans for Herrens Throne staaer
- Eldra númer 530
- Eldra númer útskýring T+L