Sálmabók
246a. Nú gjaldi Guði þökk
Spila hljóðdæmi
0:00
0:00
1 Nú gjaldi Guði þökk
hans gjörvöll barnahjörðin,
um dýrð og hátign hans
ber himinn vott og jörðin.
Frá æsku vorri var
oss vernd og skjól hans náð
og allt vort bætti böl
hans blessað líknarráð.
2 Vor Guð sem gjörvallt á
oss gefi snauðum mönnum
í hjörtun æðstan auð
af andans gæðum sönnum.
Í náð og sátt við sig
oss seka taki hann
og leiði loks til sín
í ljóss og dýrðar rann.
3 Guð faðir, þökk sé þér
og þínum dýrsta syni
og æðstum anda skýrð
af engla' og manna kyni.
Þitt vald sem var og er
og verður alla tíð
sé heiðrað hátt um jörð
og himin ár og síð.
- TMartin Rinckart um 1630, 1636 – Helgi Hálfdánarson – Sb. 1886Nun danket alle Gott
- LMartin Rinckart um 1630 – Crüger 1647 – JH 1885Nun danket alle Gott
- Eldra númer 26
- Eldra númer útskýring T+L