Sálmabók
271. Lof sé þér, Guð
1 Lof sé þér, Guð, þín líkn ei þver,
lind allrar gæsku, dýrð sé þér.
Lof þér sem veitir hjálp og hlíf,
himneska svölun, eilíft líf.
2 Lofar þig sól, þér lýtur jörð.
Lífið þér færi þakkargjörð,
blessi þitt nafn um eilíf ár:
Einn sannur Guð og faðir hár.
- TSigurbjörn Einarsson 1966 – Sb. 1972
- LLouis Bourgeois 1551 – Gr. 1607Or sus, serviteurs du Seigneur / Herr Gott, dich loben alle wir
- Eldra númer 30
- Eldra númer útskýring T+L