Sálmabók

272a. Hallelúja, dýrð sé Drottni

Spila hljóðdæmi
0:00
0:00
hymn notes

Hallelúja, dýrð sé Drottni,
vors Drottins vegsemd aldrei þrotni,
hann tigni allt sem mest það má.
Guð vorn allir göfgi lýðir
og gjörvallt skapað allar tíðir
svo hér á jörð sem himnum á.
Hann lofi líf og sál,
hann lofi rödd og mál.
Hallelúja!
Hans gæskuþel
allt gjörir vel,
vor Guð oss blessar líf og hel.

  • THelgi Hálfdánarson – Sb. 1886
  • LGuðmundur Karl Brynjarsson 2017
    Sæll er hver sem deyr í Drottni
  • Eldra númer 30
  • Eldra númer útskýring T+L