Sálmabók
Spila hljóðdæmi
0:00
0:00
1 Almáttugur Guð allra stétta,
yfirbjóðandi engla og þjóða,
ei þurfandi staða né stunda,
staði haldandi´ í kyrrleiks valdi,
senn verandi úti og inni,
uppi og niðri og þar í miðju,
lof sé þér um aldur og ævi,
eining sönn í þrennum greinum.
2 Máría, ert þú móðir dýrust,
Máría, lifir þú sæmd í hárri.
Máría, ert þú af miskunn kærust,
Máría, létt þú syndafári.
Máría, lít þú mein þau er vóru,
Máría, lít þú klökk á tárin,
Máría, græð þú mein hin stóru,
Máría, ber þú smyrsl í sárin.
3 Fyrir Máríu faðminn dýra,
fyrir Máríu grátinn sára,
lát mig þinnar lausnar njóta,
lifandi Guð með föður og anda.
Ævinlega með lyftum lófum,
lof ræðandi’, á kné sín bæði,
skepnan öll er skyld að falla,
skapari minn, fyrir ásjón þinni.
- TEysteinn Ásgrímsson um 1350 – Sb. 1972Lilja
- LÍslenskt þjóðlag – ÍÞ 1906 – Vb. 1976Liljulag / Almáttugur Guð allra stétta
- Eldra númer 40
- Eldra númer útskýring T+L